Braggar frá seinni heimsstyrjöldinni víkja fyrir Krónuverslun Eiður Þór Árnason skrifar 10. maí 2021 23:27 Núverandi eigandi stefnir á að gefa bröggunum nýtt líf. Skapti Hallgrímsson Tveir braggar sem reistir voru af breska hernum í seinni heimsstyrjöldinni víkja nú fyrir nýrri verslun Krónunnar á Akureyri. Fyrirhugað er að gefa bröggunum nýtt hlutverk, endureisa þá annars staðar og nýta allt sem nýta má úr þeim og samliggjandi vörugeymslu.
Byrjað var að rífa niður bragganna í dag en þeir hafa lengi verið áberandi kennileiti á horni Tryggvabrautar og Hvannavalla á Akureyri, ekki fjarri verslunarmiðstöðinni Glerártorgi. Greint er frá þessu á fréttamiðlinum Akureyri.net en braggarnir voru hluti af Delta Camp-búðum breska hersins sem reistar voru árið 1941 þegar umsvif hersins voru talsverð í Eyjafirði. Braggarnir hafa lengi verið áberandi á horni Tryggvabrautar og Hvannavalla.Skapti Hallgrímsson Braggarnir standa nú á lóð Festar en smásölufyrirtækið hefur stefnt að því að opna Krónuverslun á Akureyri frá árinu 2016. Nokkuð er síðan umrædd lóð varð fyrir valinu og stendur nú til að opna verslunina haustið 2022. Braggarnir eru nú í eigu GV grafa. Guðmundur V. Gunnarsson, annar eigandi fyrirtækisins, segir að nánast allt úr bröggunum tveimur og samliggjandi vörugeymslu verði nýtt, þar á meðal stálgrindur og þakefni. Þá stefnir hann að því að endurreisa braggana og nýta undir starfsemi félagsins. Vörugeymslan verði brotin niður og sökklar undir bröggunum, en allt það efni verði til að mynda mulið og notað sem uppfyllingarefni. Hræddur um að þeir yrðu sendir í brotajárn „Ég er búinn að bíða í mörg eftir því að braggarnir yrðu falir!“ sagði Sigurður bóndi á Steinsstöðum við Akureyri.net í morgun. „Mig langaði dálítið í þá en var þó aðallega hræddur um að þeir yrðu rifnir og sendir í brotajárn. Ég gat ekki hugsað mér það nú á tímum, þegar menn vilja helst endurnýta allt. Bæði er þetta úrvals efni og svo auðvitað hluti af sögunni.“ Guðmundur V. Gunnarsson, framkvæmdastjóri og annar eigandi GV grafa, til vinstri. Með honum er Fjölnir Sigurjónsson.Skapti Hallgrímsson Niðurstaðan var sú að GV gröfur fá bragganna en Sigurður fær að nýta allt sem hægt er úr vörugeymslunni. Hefur hann meðal annars áhuga á að nota stálgrindina til að reisa fjós en hann ræktar nautgripi til kjötframleiðslu á bænum Steinsstöðum II í Öxnadal ásamt eiginkonu sinni Ásrúnu Árnadóttur. Talið er að braggarnir á horni Tryggvabrautar og Hvannavalla hafi verið minnst sex talsins þegar breski herinn var með viðveru á svæðinu. Þeir tveir síðustu, sem nú er verið að taka niður, voru lengi hluti húsnæðis byggingavörudeildar KEA.
Akureyri Verslun Seinni heimsstyrjöldin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Sjá meira