„Ég sé ekki fram á það verði gert neitt fyrir fólk eins og okkur“ Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 16. mars 2023 21:30 Þórdís hefur ekki fengið nein svör um hvenær 16 mánaða sonur hennar komist inn á leikskóla. Aðsend Fjögurra manna fjölskylda neyddist til að flytja úr íbúð sinni og leigja hana út til að ná endum saman, þar sem yngsta barnið kemst ekki inn á leikskóla. Foreldrar segja nóg komið af innantómum yfirlýsingum og krefjast tafarlausra aðgerða. Mótmæli hafa verið boðuð á ný í næstu viku.
Áform sem Reykjavíkurborg kynnti á síðasta ári um opnun sjö nýrra leikskóla auk þess sem börn frá tólf mánaða aldri áttu að fá pláss gengu ekki eftir. Mörg hundruð börn eru á biðlista og aukinnar örvæntingar gætir hjá ráðalausum foreldrum. Boðað var til mótmæla í morgun við ráðhúsið. Ein þeirra sem mætti til að mótmæla í Ráðhúsinu í morgun er Þórdís Ólöf, móðir Ævars Nonna, 16 mánaða. Átta mánuðir eru síðan fæðingarorlofið kláraðist og hafa Þórdís og maðurinn hennar þurft að brúa bilið síðan. Þórdís skráði sig í nám eftir fæðingarorlof til að eiga rétt á námslánum. Hún kláraði námið og byrjaði að vinna í janúar. Maðurinn hennar er nú launalaus heima með barnið. Þórdís skráði sig í nám eftir fæðingarorlof til að eiga rétt á námslánum. Hún kláraði námið og byrjaði að vinna í janúar. Maðurinn hennar er nú launalaus heima með barnið. Aðsend Fjölskyldan neyddist til að flytja úr íbúðinni sinni og leigja hana út til að ná endum saman. „Þetta gengur auðvitað ekki upp fjárhagslega fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Þannig að við búum núna í íbúð sem foreldrar mínir leigja okkur ódýrt. Hún er 34 fermetrar, við erum fjögur og erum að leigja okkar íbúð út á airbnb af því við sjáum ekki fram á að geta staðið straum af tekjum með einum launatjékka,“ segir Þórdís. Upphaflega ætluðu þau sér aðeins að leigja íbúðina í þrjá mánuði en vegna þess að Ævar Nonni fær hvergi dagvistun hefur sá tími sífellt lengst og óvissa varðandi framhaldið er mikil. „Dagarnir sem við megum leigja út eru búnir núna um páskana og þá þurfum við að ákveða hvort við ætlum að setja þetta í langtímaútleigu og búa áfram í 34 fermetrum eða hvort við munum flytja aftur inn.“ Þetta er rosalega streituvaldandi og kvíðavaldandi og staða sem ég óska ekki neinum að vera í. „ Það er mikið um stór loforð og langtímaáætlanir en hvað verður gert fyrir svona fólk eins og mig, sem er bara í rosalega viðkvæmri stöðu? Ég sé ekki fram á það verði gert neitt fyrir fólk eins og okkur.“
Leikskólar Börn og uppeldi Reykjavík Tengdar fréttir Foreldrar mótmæltu í ráðhúsinu: „Ætlum ekki að hætta fyrr en eitthvað gerist“ Foreldrar komu saman í ráðhúsi Reykjavíkur í morgun og mótmæltu þeirri stöðu sem enn á ný er komin upp í leikskólamálum. Dæmi er um að börn þurfi að bíða í á þriðja ár eftir leikskólaplássi. Borgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins segir ástandið grafalvarlegt og það sé tilkomið vegna trassaskapar. 16. mars 2023 11:46 Foreldrar krefjast svara frá borginni: „Þetta er algjörlega óviðunandi ástand“ Neyðarástand blasir við í leikskólamálum að sögn foreldris barns á leikskólaaldri. Úthlutun leikskólaplássa hófst í dag en takmörkuð mönnun og framkvæmdir hafa áhrif á hversu mörg börn komast að eftir sumarið. Stór hópur foreldra hefur tekið höndum saman og krefur borgina um skýr svör eftir innantóm loforð. Staðan sé óviðunandi. 14. mars 2023 14:00 Færri leikskólabörn innrituð í Reykjavík í haust vegna framkvæmda Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavík hefst á morgun. Einn leikskóli mun ekki taka við nýjum börnum og endurbætur á húsnæði munu hafa áhrif á innritun sex annarra leikskóla. 13. mars 2023 13:51 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Fleiri fréttir Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Sjá meira
Foreldrar mótmæltu í ráðhúsinu: „Ætlum ekki að hætta fyrr en eitthvað gerist“ Foreldrar komu saman í ráðhúsi Reykjavíkur í morgun og mótmæltu þeirri stöðu sem enn á ný er komin upp í leikskólamálum. Dæmi er um að börn þurfi að bíða í á þriðja ár eftir leikskólaplássi. Borgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins segir ástandið grafalvarlegt og það sé tilkomið vegna trassaskapar. 16. mars 2023 11:46
Foreldrar krefjast svara frá borginni: „Þetta er algjörlega óviðunandi ástand“ Neyðarástand blasir við í leikskólamálum að sögn foreldris barns á leikskólaaldri. Úthlutun leikskólaplássa hófst í dag en takmörkuð mönnun og framkvæmdir hafa áhrif á hversu mörg börn komast að eftir sumarið. Stór hópur foreldra hefur tekið höndum saman og krefur borgina um skýr svör eftir innantóm loforð. Staðan sé óviðunandi. 14. mars 2023 14:00
Færri leikskólabörn innrituð í Reykjavík í haust vegna framkvæmda Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavík hefst á morgun. Einn leikskóli mun ekki taka við nýjum börnum og endurbætur á húsnæði munu hafa áhrif á innritun sex annarra leikskóla. 13. mars 2023 13:51