Íslenskan glímir við ímyndarvanda Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. september 2021 15:21 Íslensk málnefnd segir mikilvægt að menntakerfið glími við ímyndarvanda íslenskunnar. Vísir/Vilhelm Mikilvægt er að skólakerfið glími við ímyndarvanda íslenskunnar að mati Íslenskrar málnefndar, sem gefið hefur út árlegt álit sitt á stöðu íslenskrar tungu.
Ályktunin er gefin út samhliða því að boðað hefur verið til málræktarþings um íslenskukennslu á 21. öld, sem haldið verður þann 30. september á Þjóðminjasafninu. Meðal þess sem fram kemur í ályktuninni er að mikilvægt sé að skólakerfið glími við ímyndarvanda íslenskunnar. Auka þarf áherslu á málörvun og málþroska á leikskólastigi. Endurmeta þurfi inntak íslenskukennslu og menntun íslenskukennara. Þá þurfi að efla þurfi kennslu í íslensku sem öðru máli. Styðja þurfi betur við bókasöfn sem upplýsingaveitu og upplýsingamiðstöð og enn fremur námsefnisgerð á íslensku en nýta þurfi þar möguleika upplýsingatækninnar. Enskan tengd við skemmtilega hluti frekar en íslenskan Sérstakur kafli í ályktun málnefndar fjallar um ímyndarvanda íslenskunnar. Segir þar að íslenskan eigi við slíkan vanda að glíma sem þjóðtunga og kennslutunga, meðal annars á meðal skólabarna. Hluta skýringarinnar sé að finna innan menntakerfisins, en einnig svokallaðan umdæmisvanda. „Hann felst í stækkandi notkunarsviði ensku á kostnað íslensku og takmörkuðu aðgengi að fjölbreyttu innlendu eða þýddu efni,“ segir í ályktuninni. Íslenskir nemendur tengi ensku við skemmtilega hluti, en íslensku við þá sem eru ögn leiðinlegri. „Í huga nemenda er íslenska stundum tengd sérstaklega við skólaverkefni, einkunnir, leiðréttingar, virðingu og eldra fólk en enska aftur á móti við skemmtun, afþreyingu, ferðalög og framtíðartækifæri,“ segir í ályktuninni. „Mikilvægt er að skólar og samfélagið allt geri sér grein fyrir þessum viðhorfsvanda og átti sig á hve skaðleg neikvæð umræða um íslenska málnotkun getur verið fyrir ímynd íslensks máls annars vegar og sjálfsmynd nemenda hins vegar,“ segir ennfremur. Lesa má ítarlega ályktun Íslenskrar málnefndar um stöðu íslenskrar tungu 2021 hér.
Íslenska á tækniöld Tengdar fréttir Svar við bréfi Lilju gefur vonir um meiri íslensku hjá Disney Fleiri myndir verða aðgengilegar með íslenskri talsetningu og texta á streymisveitunni Disney+ eftir nokkra mánuði. Þetta kemur fram í svari Hans van Rijn, yfirmanns Disney á Norðurlöndunum, við erindi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. 8. febrúar 2021 18:11 Lilja vonsvikin með Disney Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur sent Bob Chapek, forstjóra Disney, bréf þar sem hún hvetur fyrirtækið til þess að bjóða í meira mæli upp á íslenska talsetningu og texta á streymisveitu sinni, Disney+. Hún kveðst hafa orðið fyrir vonbrigðum þegar hún komst að því hve lítið af slíku efni er í boði hjá fyrirtækinu. 1. febrúar 2021 18:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Fleiri fréttir Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Sjá meira
Svar við bréfi Lilju gefur vonir um meiri íslensku hjá Disney Fleiri myndir verða aðgengilegar með íslenskri talsetningu og texta á streymisveitunni Disney+ eftir nokkra mánuði. Þetta kemur fram í svari Hans van Rijn, yfirmanns Disney á Norðurlöndunum, við erindi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. 8. febrúar 2021 18:11
Lilja vonsvikin með Disney Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur sent Bob Chapek, forstjóra Disney, bréf þar sem hún hvetur fyrirtækið til þess að bjóða í meira mæli upp á íslenska talsetningu og texta á streymisveitu sinni, Disney+. Hún kveðst hafa orðið fyrir vonbrigðum þegar hún komst að því hve lítið af slíku efni er í boði hjá fyrirtækinu. 1. febrúar 2021 18:41