Dagurinn hefur nóttina undir í dag Kjartan Kjartansson skrifar 20. mars 2023 12:30 Lofthjúpur jarðar virkar eins og linsa sem lyftir sólinni upp um eitt sólarþvermál. Því sést sólin á himni áður en hún er raunverulega komin yfir sjóndeildarhringinn. Dagurinn er því örlítið lengri en nóttin, jafnvel á vorjafndægrum. Vísir/Vilhelm Vorjafndægur verða á norðurhveli jarðar klukkan 21:24 í kvöld, 20. mars 2023. Dagur og nótt eru nú um það bil jafnlöng en næsta hálfa árið hefur ljósið vinninginn yfir myrkrið.
Sólin er nákvæmlega yfir miðbaug himins á vorjafndægrum. Vorjafndægur og haustjafndægur eru einu dagar ársins sem sólin rís í austri og sest í vestri. Á sama tíma eru haustjafndægur á suðurhveli. Eins og rakið er í grein á Vísindavefnum er þó ekki alveg nákvæmt að segja að dagur og nótt séu jafnlöng á jafndægrum. Dagsbirtan varir örlítið lengur en myrkrið, annars vegar vegna þess hvernig sólin er skilgreind í almanökum og hins vegar vegna áhrifa lofthjúps jarðar á sólarljósið. Sólin er þannig skilgreind sem punktur í almanökum þó að hún sé í raun skífa. Sólarupprás og sólsetur miðast þannig við hvenær punktur í miðju sólarskífunnar kemur upp yfir sjóndeildarhringinn þrátt fyrir að byrjað sé að birta áður. Lofthjúpurinn sveigir einnig ljós frá sólinni þannig að hún birtist í raun á himni áður en hún er komin yfir sjóndeildarhringinn. Þannig flýtir ljósbrot lofthjúpsins ekki aðeins sólarupprás um nokkrar mínútur heldur seinkar sólsetri einnig. Eftir vorjafndægur heldur sólin áfram að hækka á lofti allt fram á sumarsólstöður. Þær verða klukkan 14:47 miðvikudaginn 21. júní í ár. Eftir þær byrjar daginn að stytta aftur. Haustjafndægur í ár verða klukkan 6:49 að morgni 23. september og verður nóttin þá aftur orðin deginum lengri.
Geimurinn Vísindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Innlent „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning Þrír sóttu um stöðu dómara við Landsrétt Sjá meira