„Rosalega stolt af honum“ Stefán Árni Pálsson skrifar 21. september 2020 13:31 Sigríður þykir einstaklega góð söngkona.
Sigríður Thorlacius söngkona var gestur í Bakaríinu á Bylgjunni á laugardaginn og ræddi þar um feril sinn í tónlistarsenunni hér á landi. Sigríður þykir ein allra besta söngkona landsins. „Ég söng alltaf í kórum og svona en var lítið í því að koma fram ein og tók aldrei þátt í neinum söngvakeppnum,“ segir Sigríður. „Ég var feimið barn og söng bara ein úti í horni. Svo fór ég í söngnám þegar ég var í menntaskóla. Svo flutti ég til Parísar í smástund og ákvað síðan að fara í djass söngnám þegar ég kom til baka. Þetta gerði ég allt bara því mér fannst þetta gaman og ekkert endilega af því að ég ætlaði mér að verða söngkona, þetta var bara áhuga mál.“ Hún segist hafa langað að verða leikkona, blómasali og prestur. „Ég held ég sé ekki beint feimin í dag og maður skólast auðvitað til. Sem barn var ég rosalega hlédræg og það fór ekki mikið fyrir mér. Mér fannst rosalega þægilegt að vera í hóp og þess vegna fannst mér gott að vera í kór. Draumurinn minn var aldrei að standa ein fyrir einhverju og því hefur mér þótt gott að vera í hljómsveit og vinna með öðru fólki.“ Sigríður segist samt sem áður geta staðið ein á sviði í dag og það nokkuð skammarlaust. Hún rifjar upp þegar sveitin Hjaltalín fór á flug og varð snögglega ein vinsælasta sveit landsins. Opnunarmynd RIFF, Þriðji Póllinn, fjallar meðal annars um Högna Egilsson sem er með Sigríði í bandinu Hjaltalín. Högni er með geðhvarfasýki og er það umfjöllunarefni kvikmyndarinnar. „Ef maður getur sagt sem svo þá þekkjum við Högna fyrir og eftir. Við vorum að vinna saman og erum vinir þegar hann var að ganga í gegnum þetta í fyrsta skipti, sína fyrstu maníu. Það var oft alveg rosalega erfitt en líka gefandi og ég er rosalega stolt af honum. Hvernig hann er að vinna í sínum málum finnst mér alveg til fyrirmyndar.“ Hér að neðan má hlusta á viðtalið í heild sinni.
Bakaríið Tónlist Mest lesið Ætlaði aldrei að deila því með öðrum að hún væri ófrjó Lífið „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Lífið Love Lies Bleeding: Ekið af hraðbraut og út í skurð Gagnrýni „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Lífið Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Lífið „Eins og verstu unglingar í sleepover“ Makamál „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Lífið Raggi Bjarna þekkti ekki Friðrik Dór með nafni Lífið Anníe Mist fór í keisaraskurð Lífið Fleiri fréttir Ætlaði aldrei að deila því með öðrum að hún væri ófrjó „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Náttúrulegar bótox-meðferðir án sprautunála „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Raggi Bjarna þekkti ekki Friðrik Dór með nafni Friðrik Ómar kynnir stig Íslands í Eurovision Ian Gelder úr Game of Thrones látinn „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Svakalega erfitt en stórkostlegt Anníe Mist fór í keisaraskurð Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum Sötrað á Kalda í tíu ár Grease-stjarnan Susan Buckner látin Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Hera komst ekki áfram „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Eurovision-hópurinn afklæðist milli atriða Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi „Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Jólasveinarnir langt á undan áætlun Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Sjá meira