Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq kauphallarinnar á Íslandi, segir nýhafið ár leggjast vel í sig og telur hann Kauphöllina eiga töluvert inni. Þá tiltrú byggir hann á jákvæðum breytingum sem hafa átt sér stað í starfsumhverfi Kauphallarinnar undanfarin misseri.

„Ég tel að Kauphöllin standi á ákveðnum tímamótum. Það hefur margt gott verið að gerast í starfsumhverfi okkar og ég tel að við séum að nálgast ákveðið „aha-augnablik" - þar sem okkur verður ljóst að markaðurinn hér á Íslandi býður upp á fleiri möguleika en áður var talið. Ég trúi því að við séum núna í stöðu þar sem góðar líkur eru á að fjárfestaþátttaka, viðskipti og fjármögnun á markaði geti orðið í líkingu við það sem við þekkjum í hinum Nasdaq kauphöllunum á á Norðurlöndunum. Það eru ákveðin grundvallaratriði sem eru að færast í góðan farveg á íslenska markaðnum. Á markaðnum eru svo nú þegar sterkir lífeyrissjóðir og fagfjárfestar, auk þess sem við erum með fyrsta flokks umgjörð t.d. hvað varðar viðskiptakerfi og regluverk."

Einstaklingsþátttaka haldi áfram að aukast

Frá hruni hefur þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði verið nokkuð dræm en breyting til batnaðar hefur átt sér stað undanfarna mánuði. Magnús segir þessa auknu þátttöku einstaklinga á innlendum hlutabréfamarkaði mikið fagnaðarefni og telur hann marga þætti benda til þess að þátttaka almennings á markaðnum muni halda áfram að aukast.

„Við höfum séð mikla aukningu í þátttöku einstaklinga á markaðnum á síðustu mánuðum. Fjöldi einstaklinga sem á hlutabréf tvöfaldaðist á síðasta ári, úr ríflega 8 þúsund manns yfir í ríflega 16 þúsund." Hlutafjárútboð Icelandair hafi spilað lykilhlutverk í að auka þátttöku almennings á markaðnum. „Ég held að þetta sé bara byrjunin á því sem koma skal. Það er mjög margt sem styður við áframhaldandi aukningu."

Magnús segir að auk þess styðji ýmis fjárhagsleg atriði við aukinn áhuga einstaklinga á að fjárfesta í hlutabréfum á markaði. „Almenningur er með töluvert mikið magn af bankainnistæðum sem liggja á mjög lágum vöxtum og því er ekki ólíklegt að fólk muni horfa til fjárfestinga á hlutabréfamarkaði til að ávaxta fé sitt. Þá er nýbúið að setja í lög skattalega ívilnun sem felur í sér útvíkkun frítekjumarks vaxtatekna, sem nær nú líka til söluhagnaðar og arðgreiðslna af skráðum félögum." Að fyrrgreindu megi sjá að ýmsir þættir vinni með Kauphöllinni hvað aukna þátttöku einstaklinga á markaði varðar. „Ég yrði mjög hissa ef við myndum ekki sjá áframhaldandi þróun í þessa átt á þessu ári."

Nánar er rætt við Magnús í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .