Horfa á 25. október til að klippa á borðann í Dýrafjarðargöngum Kristján Már Unnarsson skrifar 14. október 2020 21:04 Nýi vegurinn milli Dýrafjarðarbrúar og Dýrafjarðarganga. Búið er að mála veglínur á akbrautina og vegrið er komið upp í vegkantinum. Mynd/Framkvæmdaeftirlit Dýrafjarðarganga.
Eftirvæntingar gætir á Vestfjörðum vegna væntanlegrar opnunar Dýrafjarðarganga, nú þegar jarðgöngin eru nánast tilbúin. Þegar slegið var í gegn í fyrra nefndi samgönguráðherra dagsetninguna 14. september 2020 sem opnunardag og fyrr í haust var talað um miðjan október. En hvenær rennur stóri dagurinn upp? „Það hefur verið stefnt á að opna göngin með borðaklippingu sunnudaginn 25. október. Þetta er hins vegar í óvissu vegna covid,“ svarar upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, G. Pétur Matthíasson, og vonast til að þetta skýrist betur á næstu dögum. Jarðgangamunninn Dýrafjarðarmegin. Verið er að setja jarðvegsfyllingar að vegskálum beggja vegna.Mynd/Framkvæmdaeftirlit Dýrafjarðarganga. Pétur tekur fram að ef klippt verði á borðann 25. október, eða dagana þar í kring, gætu væntanlega að hámarki tuttugu manns verið viðstaddir, í samræmi við gildandi fjöldatakamarkanir vegna veirunnar. Þá er einnig í myndinni að beðið verði með opnunarathöfn fram á vorið þótt göngin verði opnuð fyrir umferð nú í haust, að sögn Péturs. Enda sé ekki mælt með því að menn séu að ferðast mikið úr borginni út á land þessa dagana. Dýrafjarðargöng að innan eru að mestu tilbúin. Lýsingin er komin og búið að mála veglínur.Mynd/Framkvæmdaeftirlit Dýrafjarðarganga. Í nýjasta stöðuyfirliti á fésbókarsíðu Dýrafjarðarganga, um framvindu verksins síðustu tvær vikur, kemur fram að vegmálun í göngum og utan ganga sé lokið. Þá hafi verið klárað að leggja seinna lag klæðingar á veginn í Dýrafirði. Inni í göngunum hafi verið unnið við uppsetningu á búnaði og tengingum, sem og við stjórnkerfi ganganna. Stoðir fyrir vegrið reknar niður við gatnamótin hjá Dýrafjarðarbrú. Leiðin til vinstri liggur til Þingeyrar en leiðin til hægri til Ísafjarðar.Mynd/Framkvæmdaeftirlit Dýrafjarðarganga. Í Dýrafirði hafi meirihluti vegriða verið settur upp. Vegtenging sem liggi inn eftir Dýrafirði sé því sem næst tilbúin. Malarklæðing sé komin á veginn en eftir að klára tengingu að gamla veginum. Haldið hafi verið áfram með fyllingar yfir vegskála beggja vegna, segir í yfirlitinu, sem Baldvin Jónbjarnarson ritar fyrir hönd framkvæmdaeftirlits Dýrafjarðarganga. Hér má sjá gleðina sem ríkti þegar slegið var í gegn í apríl í fyrra: Hér má sjá hvað menn losna við með jarðgöngunum:
Dýrafjarðargöng Samgöngur Umferðaröryggi Ísafjarðarbær Tengdar fréttir Vesturleiðin opnast með síðasta stóra snjómokstrinum á Hrafnseyrarheiði Vonast er til að vesturleiðin til Ísafjarðar opnist á morgun en snjóruðningsmenn Vegagerðarinnar kappkosta nú við að moka Hrafnseyrarheiði. Þetta er að öllum líkindum síðasti snjómokstur á þessum erfiða farartálma áður en Dýrafjarðargöng opnast. 6. maí 2020 22:35 Illviðrin og veiran seinka opnun Dýrafjarðarganga Óvenju erfiður illviðravetur og kórónuveiran valda því að verktakar Dýrafjarðarganga sjá núna fram á að ekki takist að standa við dagsetninguna sem samgönguráðherra hafði nefnt sem opnunardag næsta haust. 16. apríl 2020 12:43 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vaknaði og barnið var horfið Innlent Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Innlent Maðurinn ríkisborgari Möltu Innlent Fleiri fréttir „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Óska eftir tilnefningum um Reykvíking ársins Þvingun úr landi og prestar í kisubúning Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun Vænsti maður og harðduglegur Spreyjaði málningu á bifreiðar í miðbænum Fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir árekstur Kaldavatnslaust á Arnarnesi Telur ekki viðeigandi að tjá sig um mál Maríu Sigrúnar Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Sýnist stefna í kapphlaup tveggja en útilokar þó ekki vendingar Mótmæla þróun gervigreindar á Austurvelli Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Guðni heldur utan til að kveðja Margréti Þórhildi Telur ástandið á sauðfjárbúinu ekki eins slæmt og menn vilja vera láta Sjá meira
Vesturleiðin opnast með síðasta stóra snjómokstrinum á Hrafnseyrarheiði Vonast er til að vesturleiðin til Ísafjarðar opnist á morgun en snjóruðningsmenn Vegagerðarinnar kappkosta nú við að moka Hrafnseyrarheiði. Þetta er að öllum líkindum síðasti snjómokstur á þessum erfiða farartálma áður en Dýrafjarðargöng opnast. 6. maí 2020 22:35
Illviðrin og veiran seinka opnun Dýrafjarðarganga Óvenju erfiður illviðravetur og kórónuveiran valda því að verktakar Dýrafjarðarganga sjá núna fram á að ekki takist að standa við dagsetninguna sem samgönguráðherra hafði nefnt sem opnunardag næsta haust. 16. apríl 2020 12:43