Þeim sem sáu varð ekki um sel þegar maður með veiðistöng óð á grynningum út í Ölfusá, rétt fyrir ofan brúna á Selfossi nú í eftirmiðdaginn. Maðurinn var á gúmmístígvélum og í björgunarvesti, var hann að renna fyrir fisk.
„Þetta er algjör klikkun hjá manninum,“ sagði Viktor Óskarsson íbúi á Selfossi, sem stóð á vestari bakka Ölfusár og fylgdi með hverju fram fór.
„Árbotninn á þessum slóðum er sleipur og ef manninum skrikar fótur fer hann í strauminn og elginn sem þarna gleypir allt.”
Vaðmennirnir í Ölfusá voru tveir en annar óð sýnu lengra eða út að svonefndum Jórukletti. Fjölda áhorfenda dreif að, enda er hættuspil sem þetta sjaldséð á Selfossi.
Ekki náðist í lögreglu vegna málsins, sem þó má ætla að hafa stigið inn í atburðarás þessa.
Ölfuá er vatnsmesta fljót landsins.
Skv. frekari upplýsingum mun veiðimaðurinn hafa verið í vöðlum og í negldum skóm. Sá er atvinnuveiðimaður að kortleggja nýtt veiðisvæði í ánni.
Fréttin hefur verið uppfærð.