Starfsmaður á bráðamóttöku smitaður af Covid-19 Eiður Þór Árnason skrifar 21. júlí 2021 11:26 Bráðamóttaka Landspítalans í Fossvogi. Vísir/Vilhelm Starfsmaður á bráðamóttöku Landspítala greindist í gær með Covid-19. Tugir samstarfsmanna á sömu vakt eru nú komnir í vinnusóttkví og verða sendir í skimun.
Þetta staðfestir Hildur Helgadóttir, verkefnastjóri farsóttarnefndar Landspítala. Sóttkví sjúklings sem var í sóttkví eftir för erlendis hefur verið framlengt vegna smitsins en tilfellið hefur ekki haft áhrif á aðra sjúklinga, að sögn Hildar. Starfsmaðurinn var bólusettur og mætti síðast í vinnu á mánudag. Hún segir að um fjórir starfsmenn spítalans hafi greinst með Covid-19 síðustu vikuna, ýmist áður þeir komu aftur til vinnu eftir sumarleyfi eða á meðan þeir störfuðu á spítalanum. Hildur vildi ekki gefa upp hvaða deildum hinir þrír starfsmennirnir tilheyra en segir að þeir starfi ekki allir á sjúkradeildum. Engin smit innan spítalans hafi verið rakin til þessara tilfella. Fylgjast vel með samstarfsfólki „Það fara fram hefðbundin þrif líkt og alltaf er þegar smit kemur upp og svo munum við fylgjast vel með samstarfsfólkinu og skima þau næstu daga,“ segir Hildur. Það er komið í vinnusóttkví eða svonefnda sóttkví C og þarf að halda sig heima þegar það er ekki í vinnu. Aukin grímuskylda tók gildi fyrir starfsfólk spítalans í gær í ljósi fjölgunar smita í samfélaginu. Þá þurfa starfsmenn sem fara erlendis að framvísa neikvæðu Covid-prófi áður en þeir snúa aftur til vinnu. Vonuðust til að bóluefni veittu meiri vernd „Eðli vinnunnar vegna þá er fólk í samskiptum við mjög marga og þess vegna tókum við aldrei grímuskylduna alveg af, við bara hertum hana í gær. Áður máttu þau taka grímuna niður í sameiginlegum rýmum þegar þau voru ekki að sinna sjúklingum,“ segir Hildur. Það kemur henni nokkuð á óvart að þetta sé staðan eftir að meira og minna allir starfsmenn spítalans hafa hlotið bólusetningu. „Maður vissi í rauninni ekki hvað gæti gerst en auðvitað vonuðum við að bólusetning myndi hafa meiri verndandi áhrif. Þetta eru fleiri smit en maður átti kannski von á.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira