Kveðja „íslenska múrinn“ með miklum trega en Elín fer til Álaborgar Sindri Sverrisson skrifar 21. mars 2023 11:31 Elín Jóna Þorsteinsdóttir fagnar í vináttulandsleik gegn B-liði Noregs á dögunum. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Elín Jóna Þorsteinsdóttir, landsliðsmarkvörður í handbolta, hefur ákveðið að söðla um í Danmörku þrátt fyrir mikinn áhuga Ringköbing á að halda henni í sínum röðum.
Elín Jóna mun í sumar ganga í raðir EH Aalborg og hún verður þar með liðsfélagi Andreu Jacobsen sem er að klára sína fyrstu leiktíð með liðinu, og á sinn þátt í því að Álaborgarliðið er á góðri leið með að komast upp í dönsku úrvalsdeildina. Elín Jóna hefur þótt spila afar vel fyrir Ringköbing og átti ríkan þátt í að halda liðinu uppi í úrvalsdeildinni í fyrra, þegar liðið var nýliði. Ljóst er að þjálfarinn Jesper Holmris mun sjá mjög á eftir henni: „Frá og með næstu leiktíð verður Ringköbing Håndbold því miður án Elínar Þorsteinsdóttur og við erum rosalega leið yfir því að okkur skyldi ekki takast að halda í þennan sterka íslenska landsliðsmarkvörð,“ segir Holmris við heimasiðu Ringköbing þar sem sagt er frá því að „íslenski múrinn“ verði kvaddur í sumar. Holmris segir Elínu hafa reynst liðinu afar vel þegar hún kom inn með sína reynslu í lið sem var nýliði í deildinni, fyrir tveimur árum, og að hún hafi einnig spilað afar vel í vetur eftir að hafa jafnað sig af meiðslum. „Elín er stórkostlegur markvörður og áreiðanlegur aftasti hlekkur fyrir Ringköbing, og við hrósum happi yfir að hafa hana í liðinu aðeins lengur. Klúbburinn og ég óskum henni alls hins besta og við munum fylgjast áfram með henni í félags- og landsliði,“ sagði Holmris. Sjálf kvaðst Elín hafa verið hæstánægð með árin sín tvö hjá Ringköbing en að eftir vandlega íhugun hefði hún ákveðið að breyta til, svo að lífið utan vallar gengi betur upp en danskur kærasti hennar er búsettur í Álaborg. Aalborg er efst í 1. deildinni en aðeins tveimur stigum á undan Bjerringbro fyrir hálfgerðan úrslitaleik liðanna um næstu helgi, um öruggt sæti í dönsku úrvalsdeildinni. Liðin í 2. og 3. sæti fara í umspil.
Danski handboltinn Mest lesið Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Fleiri fréttir „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Sjá meira