Allt gæti farið úr böndunum hjá Rússum Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 20. janúar 2022 13:09 Jón Ólafsson, hefur sérhæft sig í málefnum Rússlands. Hann er prófessor við Háskóla Íslands. vísir/arnar Prófessor í stjórnmálaheimspeki segir afleiðingar af mögulegri innrás Rússa í Úkraínu geta verið grafalvarlegar. Þegar spenna sé orðin eins mikil og nú þurfi lítið til að allt fari úr böndunum og stríð eða jafnvel styrjöld brjótist út.
Rússar fóru að færa meira herlið að landamærum Úkraínu fyrir um tveimur mánuðum. Síðan hefur spenna magnast mjög á svæðinu og sífellt fleiri fréttir berast af því að Rússar búi sig undir innrás í landið. Joe Biden Bandaríkjaforseti gekk svo langt í gær að segja að hann teldi víst að Rússar myndu taka það skref. Jón Ólafsson, stjórnmálaheimspekiprófessor við Háskóla Íslands sem hefur sérhæft sig í málefnum Rússlands, telur ólíklegt að Bandaríkjaforseti hafi endilega mikið fyrir sér í sínum yfirlýsingum en vilji skerpa betur á alvarleika stöðunnar fyrir alþjóðasamfélaginu. Gígantískt skref að ráðast inn í landið Hann segir þó að mjög margt bendi til að Rússar séu tilbúnari nú en nokkru sinni fyrr að ráðast inn í Úkraínu. „Það að fara inn í Úkraínu með herlið er alveg gígantískt skref fyrir Rússa,“ segir Jón. Þeir hafi til dæmis aldrei viðurkennt að hafa ráðist á Úkraínumenn og þegar þeir tóku Krímskaga 2014 var sú aðgerð máluð upp sem björgunaraðgerð fyrir fólkið þar. Úkraínskur hermaður tilbúinn í átök við landamærin. Rússar hafa komið 100 þúsund hermönnum fyrir á svæðinu.ap/Andriy Dubchak Ef Rússar gengju svo langt segir Jón ómögulegt að spá fyrir um hvort önnur lönd myndu blanda sér í stríðið. „Nú spá því flestir að í raun myndu Vesturlönd ekki ganga svo langt en þetta er bara svo alvarlegt mál, þetta er svo stór breyting á þessu viðkvæma samkomulagi um landamæri sem hefur verið að smáriðlast síðan kalda stríðinu lauk að afleiðingarnar eru bara ófyrirsjáanlegar,“ segir Jón. Er þá ekki hætta á því að heimsstyrjöld brjótist jafnvel út? „Ætli það... En svona spenna getur samt farið úr böndunum. Það er það sem er alltaf stóra hættan í þessu,“ segir Jón.
Úkraína Rússland Hernaður NATO Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Sjá meira