Smitskömmun gegn Pólverjum ólíðandi

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ásamt Gerard Pokruszyński, sendiherra …
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ásamt Gerard Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, undirstrikaði að smitskömmun í garð Pólverja á Íslandi væri ólíðandi á fundi með sendiherra Póllands á Íslandi, Gerard Pokruszyński, fyrir helgi. 

Greint var frá fundinum á vef Stjórnarráðsins í dag. 

Þar segir að samskipti ríkjanna tveggja hafi verið aðalumræðuefnið á fundinum, sem fram fór á föstudaginn. Lét sendiherrann þar í ljós áhyggjur sínar af neikvæðri umræðu í garð Pólverja á Íslandi í tengslum við kórónuveirufaraldurinn. Ráðherra áréttaði þá mikilvægi þess að íbúum Íslands væri ekki mismunað í tengslum við Covid-19, hvorki pólskum né öðrum af erlendum uppruna. 

„Faraldurinn hefur kallað fram marga góða eiginleika í fari þjóðarinnar en líka slæma. Einn þeirra er smitskömmunin, sem á undanförnum vikum hefur beinst að íbúum landsins af erlendum uppruna. Við getum ekki liðið að fólki sé mismunað á slíkum grundvelli enda fer veiran ekki í manngreinarálit. Pólska samfélagið hér á landi hefur bæði auðgað þjóðlífið og átt ríkan þátt í að skapa hagsæld undanfarinna ára og umræða undanfarinna daga í þess garð er bæði óvægin og ósanngjörn,“ segir Guðlaugur Þór.

Þá kemur fram í tilkynningu utanríkisráðuneytisins að ráðherra hafi einnig fagnað góðu samstarfi milli Íslands og Póllands og þeim tækifærum sem fælust í auknum samskiptum, m.a. í tengslum við framlög úr Uppbyggingarsjóði EES.

Segir einnig að mikil gróska hafi verið í samskiptum og samstarfi á milli ríkjanna í efnahagslegu tilliti og pólitískra samskipta á undanförnum árum. Um tuttugu þúsund Pólverjar eru búsettir á Íslandi og eru þeir langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert