Viðskipti innlent

261 sagt upp í hóp­upp­sögnum í janúar

Atli Ísleifsson skrifar
Flestar uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu mars til júní 2023.
Flestar uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu mars til júní 2023. Vísir/Vilhelm

Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í janúar þar sem 261 starfsmanni var sagt upp störfum.

Frá þessu segir í tilkynningu á vef Vinnumálastofnunar. Þar segir að 244 hafi verið sagt upp í flutningum og sautján í annarri heilbrigðisþjónustu.

Flestar uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu mars til júní 2023.

Gera má ráð fyrir að þeir sautján sem hafi verið sagt upp í annarri heilbrigðisþjónustu hafi starfað hjá Sidekick Health, en fyrr í vikunni var greint frá því að 26 hafi verið sagt upp á starfstöðvum fyrirtækisins, bæði hérlendis og erlendis.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.


Tengdar fréttir

Sidekick segir upp 26 manns

Heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health hefur sagt upp 26 starfsmönnum fyrirtækisins, bæði á starfsstöðvum sínum hérlendis og erlendis.

Sex hóp­upp­sagnir á ný­liðnu ári

Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum desembermánuði. Tilkynnt var um sex hópuppsagnir á árinu 2022 þar sem 229 var sagt upp störfum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×