Erlent

Pfizer og BioNTech sækja um neyðarleyfi í dag

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Glas af bóluefninu BNT162b2.
Glas af bóluefninu BNT162b2. epa/BioNTech

Lyfjarisinn Pfizer og samstarfsfyrirtækið BioNTech munu sækja um svokallað neyðarmarkaðsleyfi í Bandaríkjunum í dag fyrir bóluefnið BNT162b2 gegn SARS-CoV-2. Það verður undir bandaríska lyfjaeftirlitinu (FDA) komið að ákveða hvort bóluefnið þykir nægjanleg öruggt til dreifingar meðal almennings.

Það liggur ekki fyrir hversu langan tíma FDA mun taka sér til að meta bólefnið en bandarísk stjórnvöld gera ráð fyrir að leyfið verði í höfn fyrir miðjan desember. Umfangsmiklar rannsóknir hafa sýnt að bóluefnið virkar í 94% tilvika hjá 65 ára og eldri. Um 40 þúsund manns tóku þátt í tilraunum fyrirtækjanna en helmingur fékk bóluefnið og helmingur lyfleysu.

Talsmenn Pfizer og BioNTech hafa sagst geta hafið dreifingu um leið og leyfið fæst. Þess má geta að venjulega tekur það um átta ár að fá bóluefni samþykkt í Bandaríkjunum og jafnvel lengri tíma að þróa það. Í Bandaríkjunum verður á forræði smitsjúkdómastofnuarinnar (CDC) að ákveða hverjir verða í forgangi þegar kemur að dreifingu.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur undirritað samning við Pfizer um kaup á 200 milljónum skammta af BNT162b2, með möguleika á 100 milljón skammta til viðbótar. Ísland hefur sama aðgang að bóluefnum og aðildarríki ESB og hefur þegar verið tryggður aðgangur að bóluefnum AstraZeneca, Sanofi-GSK og Janssen Pharmaceutica NV.


Tengdar fréttir

Aðgengi Íslands að bóluefni Pfizer tryggt

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirritaði í dag samning við lyfjafyrirtækið Pfizer um kaup á 200 milljónum skammta af bóluefni fyrirtækisins við Covid-19.

Bjarga heiminum frá gull­námunni

Ef allt gengur að óskum verða a.m.k. 50 milljón skammtar af Covid-19 bóluefninu BNT162b2 framleiddir fyrir árslok og 1,3 milljarðar skammta á árinu 2021. Tilraunir með bóluefnið lofa góðu en saga þess er um margt merkileg, ekki síst sú staðreynd að „höfundar“ bóluefnisins eru börn tyrkneskra innflytjenda í Þýskalandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×