Nýrunnið hraun notað til að hækka varnargarðana Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 26. mars 2024 19:20 Gröfumaður notast hér við nýlegt hraun til að styrkja varnargarðinn. Vísir/Sigurjón Verktakar vinna nú allan sólarhringinn að varnargörðum umhverfis Grindavík áður en haldið er í kærkomið páskafrí. Nýrunnið hraun er notað til að hækka garðana.
Hraunrásin í eldgosinu á Reykjanesskaga skreið kröftuglega fram í síðustu viku og þrýsti á varnargarðana fyrir framan Grindavík. Verktakarnir brugðust hratt við og þegar var hafist handa við að hækka þá. Fréttamaður tók út aðstæður ofan á varnargarðinum og eins og sjá má í klippunni hér að neðan rann hraun alveg upp að honum. Það stöðvaðist þó áður en það fór yfir hann. Einnig má sjá verktaka á gröfu taka nýtt hraun og nota til að styrkja við varnargarðana. Byggingartæknifræðingur segir að það mikið hafi dregið úr krafti gossins og hægst á hraunrennslinu að ekki sé óttast að hraun renni yfir garðinn í yfirstandandi gosi. Hinsvegar er búist við öðrum atburði á eftir þessum og þá vilja menn vera við öllu búnir. Verktakar eru orðnir nokkuð vanir því að vinna við heitt hraun enda hafa vegir verið lagðir bæði yfir Grindavíkurveg og á Svartsengi þar sem hraun for yfir hitalögn í febrúar. Aðstæður eru varasamar en farið er að öllu með gát. „Við höfum náttúrulega farið varlega og skoðað vel það sem við erum að gera. Förum aðeins út á og erum að brjóta og leggja undir okkur. Auðvitað er hraunið heitt en ekki það heitt að það skaði, hvorki vélar né menn. En menn þurfa að fara varlega samt sem áður,“ segir Arnar Smári Þorvarðarson, byggingartæknifræðingur hjá Verkís. Arnar Smári Þorvarðarson er byggingartæknifræðingur hjá Verkís.Vísir/Sigurjón Kærkomið frí Garðarnir hafa fyrir löngu sannað gildi sitt en ef þeir væru ekki til staðar hefði hraunið að öllum líkindum runnið í suður, yfir byggð í Grindavík. „Hraunið hefði runnið alveg niður í miðjan bæ. Ég held að það sé alveg ljóst. Hversu langt veit ég ekki en alveg langleiðina í miðjan bæ.“ Verktakar vinna nú dag og nótt áður en kærkomið páskafrí tekur við á fimmtudag. Eftir páska áætlar Arnar Smári að það muni taka um tvær til þrjár vikur að klára garðana umhverfis Grindavík „Jújú það sígur í mannskapinn, það er verið að vinna hérna ellefu tíma vaktir, allan sólarhringinn, og það að fara í frí er alveg kærkomið, öllum starfsmönnum,“ segir Arnar. Gröfumaður notast hér við nýlegt hraun til að styrkja varnargarðinn.Vísir/Sigurjón
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Erlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Fleiri fréttir 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Sjá meira