Stærsta úthlutun Rannís frá upphafi

Fjórum milljörðum króna hefur verið ráðstafað til 82 nýrra rannsóknarverkefna.
Fjórum milljörðum króna hefur verið ráðstafað til 82 nýrra rannsóknarverkefna.

Rannsóknasjóður hefur ráðstafað fjórum milljörðum króna til 82 nýrra rannsóknaverkefna sem er mesti fjöldi frá upphafi og jafnframt hefur heildarupphæð sem úthlutað er aldrei verið hærri. Mun þetta því vera stærsta úthlutun sjóðsins frá upphafi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannís. 

Rannsóknasjóður hefur verið starfræktur frá árinu 2004. Hlutverk sjóðsins er að efla grunnrannsóknir í þágu vísinda og samfélags og mennta ungt fólk til vísindarannsókna með því að styðja framúrskarandi verkefni og frábæra vísindamenn. 

Öflugt vísindastarf á Íslandi 

„Umsóknum hefur fjölgað undanfarin ár og hefur árangurshlutfall úthlutunar farið lækkandi og var þörfin fyrir auknar fjárveitingar því mikil. Alls bárust sjóðnum 402 umsóknir, sem er fjölgun frá fyrri árum, en þrátt fyrir það er árangurshlutfall í ár rúm 20% og hefur ekki verið hærra síðan 2017. Þessi mikla eftirspurn er til marks um öflugt vísindastarf á Íslandi.“ Segir í tilkynningunni frá Rannís.  

Doktorsnemar, nýdoktorar og rannsóknarverkefni hlutu styrki frá sjóðnum auk þess sem öndvegisstyrkir að upphæð 150 milljónir króna á þriggja ára tímabili voru veittir til „stórra verkefni sem skara fram úr á sínu sviði og hafa alþjóðlega tengingu.“  

„Níu öndvegisstyrkir eru veittir að þessu sinni og hefur aldrei áður verið úthlutað jafn mörgum slíkum styrkjum, eða jafn hárri upphæð sem nemur um 1,3 milljarði á næstu þremur árum. Gæði umsókna um öndvegisverkefni voru mjög mikil og því eru vísindalegar væntingar til þessara verkefna miklar.“ Segir í tilkynningunni. 

Nýir öndvegisstyrkir árið 2021 eru til eftirfarandi verkefna: 

  • Rauntímagreining á jarðskjálftaóróa til að greina náttúruvá á Íslandi, verkefnisstjórar eru Kristín Jónsdóttir, Veðurstofu Íslands, Corentin Caudron, IS-TERRE Grenoble, France og Thomas Lecocq, Royal Observatory of Belgium. 
  • Jarðskjálftavá á Íslandi, verkefnisstjórar eru Bjarni Bessason, Rajesh Rupakhety og  Sigurður Erlingsson, Verkfræði- og náttúruvísindasviði, Háskóla Íslands. 
  • Hönnunarmiðuð og reiknilega hagkvæm aðferðarfræði fyrir beina og óbeina staðgengilslíkangerð af hátíðnikerfum, Slawomir Marcin Koziel, Verkfræðideild, Háskólanum í Reykjavík. 
  • Kerfisbundinn útsláttur utangenaþátta til að skilja hvernig truflun á utangenaerfðum veldur sjúkdómum, verkefnisstjóri er Hans Tómas Björnsson, Heilbrigðisvísindasviði, Háskóla Íslands. 
  • Hlutverk MITF í svipgerðarbreytingum sortuæxlisfruma, Eiríkur Steingrímsson, Heilbrigðisvísindasviði, Háskóla Íslands. 
  • Greining og inngrip snemma í mallandi mergæxli: skimun og meðferð hjá heilli þjóð, verkefnistjóri er Sigurður Yngvi Kristinsson, Heilbrigðisvísindasviði, Háskóla Íslands. 
  • Adenín-fosfóríbósýltransferasaskortur: Meinmyndun nýrnaskaða og einstaklingsmiðuð meðferð, Viðar Örn Eðvarðsson, Landspítali Háskólasjúkrahús. 
  • Samlífi manna og örvera í daglega lífinu, verkefnisstjóri er Valdimar Hafstein, Félagsvísindasviði, Háskóla Íslands. 
  • Völd, auður og pest í tveimur dölum: Svarfaðardalur, Hörgárdalur og nágrenni um 870/1500, verkefnisstjórar eru Árni Daníel Júlíusson, Hugvísindasviði, Háskóla Íslands og Ramona Harrison, University of Bergen. 

Lista yfir úthlutunina í heild sinni og nánari upplýsingar má finna á vef Rannís. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert