Skýtur á Fernández: „Grátum ekki leikmann sem vildi ekki vera hjá okkur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. febrúar 2023 14:31 Enzo Fernández er dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. getty/Darren Walsh Lítil hamingja er hjá Benfica með hegðun Enzos Fernández, allavega ef marka má orð forseta félagsins.
Eftir mikið japl, jaml og fuður keypti Chelsea Fernández frá Benfica á 107 milljónir punda á lokadegi félagaskiptagluggans á þriðjudaginn. Argentínski heimsmeistarinn er dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Rui Costa, forseti Benfica, er langt frá því að vera sáttur með Argentínumanninn og hvernig hann lét undir lok dvalar sinnar hjá félaginu. „Enzo Fernández vildi ekki vera áfram hjá Benfica. Hann gaf okkur enga möguleika. Ég gerði mitt besta, ég er leiður en ég græt ekki leikmann sem vildi ekki vera hjá okkur. Þegar Chelsea kom inn í myndina var í raun ómögulegt að fá hann til að skipta um skoðun,“ sagði Costa. „Á gluggadaginn höfðum við náð samkomulagi um að selja Enzo til Chelsea í sumar en hann vildi ekki vera hérna. Ég reyndi að sannfæra Chelsea um að hann yrði hér fram á sumarið og yrði svo seldur á lægri upphæð en hann vildi ekki halda áfram hérna. Þá breyttist þetta allt.“ Costa hélt áfram að bauna á Fernández. „Ég vonaði að hann myndi vilja berjast um meistaratitilinn með okkur. Þegar það rann upp fyrir mér að hann vildi það ekki vildi ég ekki að hann myndi klæðast treyju félagsins aftur. Leikmaður sem vill ekki tapa einni evru og er öruggur með félagaskipti til Chelsea og vill ekki vera hérna gæti aldrei verið áfram hjá Benfica.“ Costa getur þó allavega huggað sig við að félagið græddi vel á Fernández. Benfica keypti hann á tíu milljónir punda en seldi hann fyrir næstum hundrað milljónir punda meira. Fernández, sem er 22 ára, var valinn besti ungi leikmaður heimsmeistaramótsins í Katar þar sem Argentína stóð uppi sem sigurvegari.
Portúgalski boltinn Enski boltinn Mest lesið Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Fleiri fréttir „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti