„Hann var hér úr þessum friðhelga ræðustól að ráðast á starfsfólk RÚV“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 6. desember 2022 16:17 Fjörugar umræður sköpuðust á Alþingi í dag undir liðnum fundarstjórn forseta. Vísir/Vilhelm Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði starfsfólk Ríkisútvarpsins að umtalsefni í ræðu sem hann flutti undir liðnum „um fundarstjórn forseta“ þar sem hann fullyrti að það væri viðtekin venja að Gísli Marteinn Baldursson og gestir hans hefðu í frammi „misnotkun og dónaskap“.
Hann tók sem dæmi þáttinn Vikuna þar sem hin landsþekkta leikkona Ilmur Kristjánsdóttir var gestur og sagði að það hefði verið eitt af áramótaheitum hennar að leika vonda konu á árinu en hún leikur forstjóra Útlendingastofnunar í jóladagatali barna á RÚV. „Það er orðið lítil þolinmæði í samfélaginu fyrir því að dagskrárgerðarfólk á ríkisfjölmiðli og þingmenn kosnir af þjóðinni misfari með stöðu sína og vald á jafn grófan hátt og hér hefur gerst. Það er krafa okkar að Ríkisútvarpið rétti pólitíska slagsíðu og fari að þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda,“ sagði Ásmundur. Þorgerður Katrín, formaður Viðreisnar, var eitt sinn áhrifakona innan Sjálfstæðisflokksins en skaut föstum skotum á fyrrum flokksfélaga á þinginu í dag.Vísir/Vilhelm Ræða Ásmundar féll í grýttan jarðveg á þingi því á eftir honum mætti hver þingmaðurinn á fætur öðrum til að gagnrýna málflutning hans, sú fyrsta var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar sem sagði að hann væri í einni og sömu ræðunni að gera nákvæmlega það sem hann hefði ásakað dagskrárgerðarfólk á RÚV um að hafa gert. „Hann var hér úr þessum friðhelga ræðustól að ráðast á starfsfólk Ríkisútvarpsins sem í einhverjum skemmtiþætti er með grín sem misbýður Sjálfstæðisflokknum. Þetta er svolítið takturinn núna hjá Sjálfstæðisflokknum; að vera á innsoginu og að vera ofboðslega misboðið. Kannski út af því að Ríkisútvarpið er ekki nefnt lengur bláskjár?“ spurði Þorgerður og hélt áfram. Gísli Marteinn Baldursson heldur úti vikulegum föstudagsþætti í Ríkissjónvarpinu. Ásmundur Friðriksson er ekki sáttur við orðræðuna í þættinum.Vísir/Vilhelm „Það er ekki hægt fyrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að nota þetta púlt endalaust til þess að ráðast að dagskrárgerðafólki Ríkisútvarpsins eða akademískum starfsmönnum háskóla eins og stundum hefur verið eða bara almennt listafólki því það er aðför að tjáningarfrelsinu. Það er aðför að því sem við viljum að þetta samfélag standi fyrir.“ Logi Einarsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar tók undir með Þorgerði og sagði að tilfelli sem þessi færðust í aukana. Logi Einarsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, var ekki ánægður með ræðu Ásmundar og hvatti hann til að biðjast afsökunar á ummælum sínum.Vísir/Vilhelm „Þetta er auðvitað ekki að verða einstakir viðburðir heldur er þetta að verða svona munstur. Við heyrum fólk sem er jafnvel að vinna á vegum Sjálfstæðisflokksins og hafa verið kjörnir fulltrúar reyna að grafa undan almannasamtökum og kalla þau pólitísk öfgasamtök og síðan kemur háttvirtur þingmaður Ásmundur Friðriksson hérna upp og ræðst að nafngreindu fólki sem er að vinna á ríkisfjölmiðlinum og ekki einungis það heldur fer að gera athugasemdir við ummæli viðmælanda í þættinum,“ sagði Logi. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata.Vísir/Egill Aðalsteinsson Segir að forstjóri Útlendingastofnunar sé enginn engill Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, kvaðst vera hæstánægður með jóladagatalið og sagði að það væri gott fyrir börn og foreldra. „Hvernig búum við til karakter sem við tengjum öll strax við að sé vondur? Forstjóri Útlendingastofnunar er bara ágæt myndlíking fyrir það vegna þess að sú stofnun er hreinasta og tærasta birtingarmynd mannvonsku ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur gagnvart innflytjendum. Þar birtist allt það sem þessi ríkisstjórn stendur fyrir og gegn fólki á flótta. Ekki myndi ég vilja vera sú manneskja og ég skil vel að leikarinn sem tekur að sér það hlutverk átti sig á því að þetta er ekki neinn engill sem viðkomandi er að fara að leika en að þurfa að sitja undir því að vera dregin hér í svaðið af háttvirtum þingmanni Ásmundi Friðrikssyni? Það náttúrulega nær ekki nokkurri átt.“ „Er þetta til að senda út gula spjaldið?“ Þorgerður Katrín mætti upp í pontu öðru sinni til að spyrja hver tilgangurinn væri með ræðu Ásmundar. „Ég velti fyrir mér – af því að ríkisstjórnin hefur töglin og hagldirnar þegar kemur að fjármálum Ríkisútvarpsins - er þetta til að ógna? Er þetta til að senda út gula spjaldið? „Passiði ykkur, ef þið talið ekki varlega um mig og mína, þá hafið þið verra af?“
Alþingi Ríkisútvarpið Flóttamenn Fjölmiðlar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira