Segir sanngjarnast að flauta Pepsi Max-deild kvenna af og ekkert lið falli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. október 2020 11:31 Úr toppslag Breiðabliks og Vals í byrjun þessa mánaðar. Blikar unnu 0-1 sigur og tóku þar með stórt skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum. vísir/hulda margrét
Þorkell Máni Pétursson, sérfræðingur í Pepsi Max Stúkunni á Stöð 2 Sport, segir að sanngjarnast væri að hætta keppni í Pepsi Max-deild kvenna. Hann leggur til að engin lið falli og deildin verði skipuð tólf liðum á næsta tímabili. Máni birti í gær færslu á Facebook með frétt Fótbolta.net um að lið íhugi nú hvort þau eigi að senda erlenda leikmenn heim þótt tímabilinu sé ekki lokið. Öll liðin í Pepsi Max-deild kvenna eiga tvo leiki eftir fyrir utan botnlið KR sem á fjóra leiki eftir og Breiðablik og Fylki sem eiga þrjá leiki eftir hvort lið. Keppni var stöðvuð vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins og ljóst er að hún hefst ekki aftur fyrr en eftir landsleikjahlé. Ísland mætir Svíþjóð í mikilvægum leik í undankeppni EM 27. október. Breiðablik er með tveggja stiga forskot á toppi Pepsi Max-deildarinnar og Máni segir að liðið eigi að verða krýnt Íslandsmeistari. Hann leggur til að ekkert lið falli úr Pepsi Max-deildinni en Tindastóll og Keflavík bætist við hana. Liðin eru í tveimur efstu sætum Lengjudeildarinnar og búin að tryggja sér sæti í Pepsi Max-deildinni að ári. „Mín skoðun er að sanngjarnast væri að flauta Pepsi max kvenna af. Breiðablik er meistari og Ekkert lið fellur. Keflavík og Tindastóll koma upp og spiluð 12 liða deild á næsta ári. Það er ljóst að liðin tvö sem falla úr deildinni í ár munu falla á nýju stigameti. Sem segir okkur að deildin er að verða jafnari þrátt fyrir þessi 2 sem eru að stinga af,“ skrifar Máni. Eins og áður sagði á KR fjóra leiki eftir. Liðið hefur ítrekað þurft að fara í sóttkví í sumar og Máni segir að megi deila um sanngirni þess ef KR-ingar falla. Hann segir jafnframt erfitt fyrir lið sem eru marga útlendinga að halda þeim með tilheyrandi kostnaði án þess að fá neinar tekjur. „Ef KR fellur er það eftir að hafa lent í þrisvar í sóttkví og það má deila um hversu sanngjarnt það sé. Síðan er ósanngjarnt að þau lið sem eru að leggja metnað í kvennastarfið sitt og eru með marga erlenda leikmenn eigi að þurfa blæða pening í einhverjar vikur eða mánuði í viðbót án þess að fá nokkrar tekjur. 1. deild yrði áfram 10 lið þar sem mér skilst að 2 ný kvennalið séu á leiðinni. Ég hef enga skoðun á því hvort þetta ætti bara að vera í eitt ár eða væri komið til að vera,“ skrifar Máni. Mín skoðun er að sanngjarnast væri að flauta Pepsi max kvenna af. Breiðablik er meistari og Ekkert lið fellur. Kelfavík...Posted by Mani Pétursson on Tuesday, October 13, 2020 Hér fyrir neðan má stöðuna í Pepsi Max-deild kvenna eins og hún er núna. Síðast var leikið í deildinni helgina 3.-4. október.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Sjá meira