Vorum virkilega slappir í dag

Dúi Þór Jónsson leikstjórnandi Þórsara frá Akureyri var ansi daufur í leikslok eftir tap hans liðs gegn Njarðvík.

Dúi sagði sitt lið ekki hafa náð nægilega góðum takti og í raun á tímum farið að spila í takti við andstæðinga sína.

Dúi viðurkenndi að hans menn voru einfaldlega virkilega slappir þannan daginn og að í næstu umferð væri í raun ein þeirra síðasta líflína í deildinni þegar þeir mæta Vestra í botnslag deildarinnar. 

Dúi Þór Jónsson.
Dúi Þór Jónsson. Ljósmynd/Þórir Tryggvason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert