Okrað á almenningi: Spurningarnar sem ráðherra verður að svara Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 21. janúar 2022 12:00 Í gærkvöldi birtist tilkynning frá fyrirtækinu N1 Rafmagn (sem áður hét Íslensk orkumiðlun) þar sem neytendur eru beðnir afsökunar á rafmagnsokrinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum undanfarna daga. Fyrirtækið ætlar að endurgreiða viðskiptavinum mismuninn á uppgefnu verði og svokölluðum þrautavarataxta – en aðeins síðan í nóvember 2021. Staðreyndin er hins vegar sú að fyrirtækið hefur okrað miklu lengur á heimilum og fyrirtækjum í skjóli þrautavaraleiðarinnar sem fyrrverandi orkumálaráðherra og Orkustofnun bjuggu til. Ég hef t.d. undir höndum reikning frá því í mars 2021, þar sem fjölskylda er rukkuð um yfir 40 prósentum hærra rafmagnsverð heldur en fyrirtækið hafði auglýst sem almennt verð og gefið upp til Orkustofnunar. Frá þeim tíma og fram í nóvember hafa um átta þúsund einstaklingar og fyrirtæki verið skráð í viðskipti hjá söluaðila raforku til þrautavara, og fyrirtækið þannig okrað á almenningi í skjóli ríkisvaldsins. Orkustofnun var gert viðvart um þetta strax í apríl en ekkert breyttist. Hvers vegna fær allt þetta fólk ekki afsökunarbeiðni og endurgreiðslu vegna ofrukkunarinnar sem átti sér stað í skjóli fyrirkomulagsins sem fyrrverandi orkumálaráðherra og Orkustofnun bjuggu til? Á vettvangi stjórnsýslu og stjórnmála blasa við aðrar og stærri spurningar. Til dæmis þessar: 1. Hvers vegna ákváðu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra (með reglugerð um raforkuviðskipti og mælingar nr. 1150/2019) og Orkustofnun (með leiðbeinandi reglum sem hafa verið settar á grundvelli reglugerðarinnar) að veita einu fyrirtæki hlutverk söluaðila raforku til þrautavara án þess að kveðið væri skýrt á um ábyrgð og skyldur fyrirtækisins gagnvart neytendum? 2. Hvers vegna hefur ekki verið gerð sú krafa til söluaðila raforku til þrautavara að fyrirtækið selji öllum viðskiptavinum raforku á tilteknu verði eða verðbili eða að smásöluverð til þrautavaraviðskiptavina fylgi breytingum á heildsölukjörum? 3. Fór fram mat á samkeppnisáhrifum fyrirkomulagsins þegar reglugerðin var sett – eða hvernig samræmist það sjónarmiðum um jafnræði og virka samkeppni að stjórnvöld flytji þúsundir viðskiptavina á ári til eins fyrirtækis á samkeppnismarkaði að neytendum forspurðum? Ég hef lagt fram fyrirspurn um þetta og fleira sem varðar rafmagnsokrið á almenningi til núverandi orkumálaráðherra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Ráðuneyti hans hefur tvær vikur til að svara þessum spurningum og ég mun fylgja málinu eftir á vettvangi þingsins. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Alþingi Orkumál Verðlag Neytendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað Skoðun Riðið á Bessastöðum? Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Umræðan um dánaraðstoð Henry Alexander Henrysson Skoðun Heillandi Halla Hrund Stefán Hilmarsson Skoðun Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Að lifa í skugga heilsubrests Svanberg Hreinsson Skoðun Svik forsetaframbjóðanda við börnin á Gaza Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir Skoðun Já, Katrín Hjálmar Sveinsson Skoðun Nú vandast valið Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ókostir forsetaframbjóðandans Katrínar Jakobsdóttur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, Katrín Hjálmar Sveinsson skrifar Skoðun Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Heillandi Halla Hrund Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Riðið á Bessastöðum? Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Að lifa í skugga heilsubrests Svanberg Hreinsson skrifar Skoðun Umræðan um dánaraðstoð Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað skrifar Skoðun Opið bréf til samgönguráðherra og vegamálastjóra Hópur ferðaþjóna í Dölunum skrifar Skoðun Hugleiðingar ellilífeyrisþega um landsmálin og orkumálin Ingimundur Andrésson skrifar Skoðun Að tilheyra - Fjölmenningarþing Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Katrínu sem forseta Stefán Friðrik Stefánsson skrifar Skoðun Fegin að vera frekar spurð hvaðan ég sé, en „hverra manna ertu“ Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þekking á naloxone nefúða getur bjargað lífi Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Svik forsetaframbjóðanda við börnin á Gaza Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Getum við breytt fortíðinni? Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Á að banna TikTok? Óttar Birgisson skrifar Skoðun Gerum góðan dal enn betri Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Ný norræn stjórnarskrá Hrannar Björn Arnarsson,Ragnheiður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Getum við verið hamingjusöm í vinnunni? Héðinn Sveinbjörnsson skrifar Skoðun Þessum treysti ég til þess að standa vörð um okkar hagsmuni, landið okkar og okkar mannréttindi Ólafur Tryggvi Sigmarsson skrifar Skoðun Stærsta loftslagsráðstefna í heimi Nótt Thorberg skrifar Skoðun Er keisarinn ekki í neinum fötum? Hákon Gunnarsson ,Bergljót Kristinsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðing um sáttamiðlun Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Nöturlegt ævikvöld Elín Hirst skrifar Skoðun Hvað er eiginlega að gerast? Inga Minelgaite skrifar Skoðun Manstu ekki eftir mér Sævar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Nú vandast valið Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun The man who would be king Ian McDonald skrifar Skoðun Umhverfisávinningur þess að þrifta Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ókostir forsetaframbjóðandans Katrínar Jakobsdóttur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Sjá meira
Í gærkvöldi birtist tilkynning frá fyrirtækinu N1 Rafmagn (sem áður hét Íslensk orkumiðlun) þar sem neytendur eru beðnir afsökunar á rafmagnsokrinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum undanfarna daga. Fyrirtækið ætlar að endurgreiða viðskiptavinum mismuninn á uppgefnu verði og svokölluðum þrautavarataxta – en aðeins síðan í nóvember 2021. Staðreyndin er hins vegar sú að fyrirtækið hefur okrað miklu lengur á heimilum og fyrirtækjum í skjóli þrautavaraleiðarinnar sem fyrrverandi orkumálaráðherra og Orkustofnun bjuggu til. Ég hef t.d. undir höndum reikning frá því í mars 2021, þar sem fjölskylda er rukkuð um yfir 40 prósentum hærra rafmagnsverð heldur en fyrirtækið hafði auglýst sem almennt verð og gefið upp til Orkustofnunar. Frá þeim tíma og fram í nóvember hafa um átta þúsund einstaklingar og fyrirtæki verið skráð í viðskipti hjá söluaðila raforku til þrautavara, og fyrirtækið þannig okrað á almenningi í skjóli ríkisvaldsins. Orkustofnun var gert viðvart um þetta strax í apríl en ekkert breyttist. Hvers vegna fær allt þetta fólk ekki afsökunarbeiðni og endurgreiðslu vegna ofrukkunarinnar sem átti sér stað í skjóli fyrirkomulagsins sem fyrrverandi orkumálaráðherra og Orkustofnun bjuggu til? Á vettvangi stjórnsýslu og stjórnmála blasa við aðrar og stærri spurningar. Til dæmis þessar: 1. Hvers vegna ákváðu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra (með reglugerð um raforkuviðskipti og mælingar nr. 1150/2019) og Orkustofnun (með leiðbeinandi reglum sem hafa verið settar á grundvelli reglugerðarinnar) að veita einu fyrirtæki hlutverk söluaðila raforku til þrautavara án þess að kveðið væri skýrt á um ábyrgð og skyldur fyrirtækisins gagnvart neytendum? 2. Hvers vegna hefur ekki verið gerð sú krafa til söluaðila raforku til þrautavara að fyrirtækið selji öllum viðskiptavinum raforku á tilteknu verði eða verðbili eða að smásöluverð til þrautavaraviðskiptavina fylgi breytingum á heildsölukjörum? 3. Fór fram mat á samkeppnisáhrifum fyrirkomulagsins þegar reglugerðin var sett – eða hvernig samræmist það sjónarmiðum um jafnræði og virka samkeppni að stjórnvöld flytji þúsundir viðskiptavina á ári til eins fyrirtækis á samkeppnismarkaði að neytendum forspurðum? Ég hef lagt fram fyrirspurn um þetta og fleira sem varðar rafmagnsokrið á almenningi til núverandi orkumálaráðherra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Ráðuneyti hans hefur tvær vikur til að svara þessum spurningum og ég mun fylgja málinu eftir á vettvangi þingsins. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.
Skoðun Fegin að vera frekar spurð hvaðan ég sé, en „hverra manna ertu“ Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Þessum treysti ég til þess að standa vörð um okkar hagsmuni, landið okkar og okkar mannréttindi Ólafur Tryggvi Sigmarsson skrifar