Segja aðgerðir í fangelsum ekki í takt við aðgerðir annarsstaðar Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2022 16:52 Frá Litla hrauni. Vísir/Vilhelm Stjórn Afstöðu, félags fanga á Íslandi, skorar á fangelsisyfirvöld til að hleypa föngum sem eru komnir á reynslulausnartíma úr haldi. Stjórnin segir að á sama tíma og verið sé að ræða um afléttingar sóttvarnartakmarkana hér á landi sé sama sjónarmið ekki gildandi innan veggja fangelsa Íslands.
Greint var frá því á Vísi í morgun að hópsmit hefði komið upp á Litla Hrauni og þar hefði verið gripið til aðgerða. Föngum hefði ekki verið hleypt út úr klefum um tíma. Sjá einnig: Fangar afar ósáttir við einangrun en hópsmit er komið upp á Litla Hrauni „Rétt eins og fyrir utan hafa aldrei fleiri greinst með Covid-19 innan fangelsismúranna og reynt hefur á þolmörk bæði fanga og fangavarða. Aðgerðir eru aftur á móti í engum takti við það sem gerist í frelsinu og segja má að afleiðingar þess séu að fæða af sér nýtt afbrigði sakamanna,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn Afstöðu. Þar segir enn fremur að fangelsum hafi verið að mestu lokað fyrir inn- og útstreymi árið 2020. Fangar hafi ekki fengið heimsóknir né leyfi og börn og makar hafi þurft að halda sig fjarri. „Á sama tíma, og í stað þess að létta á fangelsunum, hefur Fangelsismálastofnun farið að beita aðferð sem kennd er við mál í kerfinu og virðist hún helst hugsuð til þess að fara eftir geðþótta lögreglunnar sem æskir þess að halda tilteknu fólki lengur í afplánun en þörf er á. Stjórn Afstöðu hefur ítrekað bent Fangelsismálastofnun á það alvarlega ástand sem skapast hefur í fangelsunum vegna hrakandi andlegri heilsu fanga. Er það helst vegna þeirrar einangrunar sem fangar hafa þurft að sæta og bætist þá ofan á þessi vanhugsaða aðferð að tefja lausn fanga eftir hentugleika lögreglunnar.“ Stjórnin segir fanga ekki fá að hafa samskipti við aðra fanga þessa dagana og þrátt fyrir að enginn sé alvarlega veikur sé þeim föngum haldið lokuðum inni í klefum án sambands við umheiminn. Sumir þeirra hafi þegar átt að hafa fengið reynslulausn. Engin ástæða sé til að halda þeim enn í fangelsi. „Stjórn Afstöðu skorar á fangelsisyfirvöld að hleypa þeim föngum sem komnir eru á reynslulausnartíma, enn með mál í kerfinu, úr fangelsi enda hafa þeir afplánað sinn dóm og bera ekki ábyrgð á löngum rannsóknartíma lögreglunnar. Fangavist þessa fólks á undanförnum mánuðum og árum hefur verið margföld á við það sem áður hefur þekkst.“ Í lok yfirlýsingarinnar þakkar Afstaða fangavörðum og öðru starfsfólki fangelsanna fyrir vinnu þeirra. Þau hafi verið undir miklu álagi og gott starf hafi verið unnið við krefjandi aðstæður.
Fangelsismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira