Mótmæli í Serbíu vegna Rio Tinto Smári Jökull Jónsson skrifar 5. desember 2021 12:05 Mótmælendur í Serbíu lokuðu götum borgarinnar vegna áforma Rio Tinto Þúsundir mótmælenda lokuðu götum víða um Serbíu í gær vegna stuðnings ráðamanna þjóðarinnar við liþíumvinnslu Rio Tinto í landinu.
Í höfuðborginni Belgrad lokuðu mótmælendur stórri hraðbraut og brú sem tengir miðborgina við úthverfin. Sungnir voru mótmælasöngvar og mótmælendur héldu á skiltum þar sem áformum Rio Tinto var mótmælt. Umtalsvert magn af liþíum er að finna í jörðu við bæinn Loznica og hefur Rio Tinto verið að kaupa landsvæði þar í kring en á enn eftir að fá grænt ljós frá yfirvöldum til að hefja námugröft. Forstjóri Rio Sava, dótturfyrirtækis Rio Tinto í Serbíu, segir að fyrirtækið ætli að fjárfesta fyrir 2,4 milljarða dollara í verkefninu en liþíum er meðal annars notað til að framleiða rafgeyma í bíla. Serbneski tennisleikarinn Novak Djokovic er meðal þeirra sem hefur tjáð sig um málið á Instagram en hann birti mynd af mótmælunum og skrifaði að hreint loft, vatn og matur væru grundvöllur fyrir góðri heilsu. Án þessara hluta væri allt tal um góða heilsu fáránlegt. „Þeir leyfa erlendum stórfyrirtækjum að gera það sem þau vilja í okkar landi. Allir geta komið og tekið það sem þeir vilja,“ sagði einn mótmælendanna en Aleksander Vucic forseti Serbíu hefur fengið mikla gagnrýni í málinu fyrir að gera fyrirtækinu kleift að eignast land með ólögmætum hætti og hunsa umhverfisáhrif framkvæmdanna. Kosningar fara fram í Serbíu á næsta ári og hafa gagnrýnendur mótmælanna sakað þá um að mótmælin séu tilraun til að grafa undan Vucic í aðdraganda þeirra. Í júlí birtust fréttir um það að Rio Tinto hefði samþykkt að kosta rannsóknir vegna umhverfisáhrifa Panguna námunnar á eyjunni Bougainville en fyrirtækið flúði þaðan árið 1989. Á eyjunni var á sínum tíma ein stærsta gull- og koparnáma í heimi.
Serbía Umhverfismál Tengdar fréttir Rio Tinto kostar rannsókn á áhrifum Panguna námunnar í Bougainville Þrjátíu og tveimur árum eftir að Rio Tinto flúði eyjuna Bougainville hefur námufyrirtækið lofað að kosta rannsókn, á vegum sjálfstæðra eftirlitsaðila, á umhverfisáhrifum Panguna námunnar. Landeigendur segja það mikilvægt skref til að snú aftur áratuga mengun og umhverfisspjöllum. 21. júlí 2021 07:50 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Fleiri fréttir Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Sjá meira
Rio Tinto kostar rannsókn á áhrifum Panguna námunnar í Bougainville Þrjátíu og tveimur árum eftir að Rio Tinto flúði eyjuna Bougainville hefur námufyrirtækið lofað að kosta rannsókn, á vegum sjálfstæðra eftirlitsaðila, á umhverfisáhrifum Panguna námunnar. Landeigendur segja það mikilvægt skref til að snú aftur áratuga mengun og umhverfisspjöllum. 21. júlí 2021 07:50