Segir Sólveigu aldrei tilbúna í samtal Ólafur Björn Sverrisson skrifar 25. janúar 2023 20:55 Ólöf Helga Adolfsdóttir ritari Eflingar. Stöð 2/Egill Ólöfu Helgu Adolfsdóttur ritara Eflingar líst illa á fyrirhuguð verkföll og vill greiða atkvæði um kjarasamning sambærilegan þeim sem önnur stéttarfélög hafa samþykkt. Hana grunar að öðrum hópi félagsfólks innan Eflingar verði boðið að fara í verkfall hafni starfsfólk Íslandshótela að leggja niður störf. „
Ég er ekki hlynnt því að fara í verkfall fyrir þennan skammtímasamning, þetta eru tólf mánuðir,“ segir Ólöf sem var til viðtals í Reykjavík síðdegis. Ólöf segir Sólveigu Önnu hafa lýst því yfir á fundi samninganefndar Eflingar að mikill vilji væri á meðal hótelstarfsfólks til að fara í verkfall. Á þeim fundi var samþykkt að greidd yrðu atkvæði um verkfallið. Ólöf segist hins vegar hafa orðið vör við önnur viðbrögð við verkfallsboðun. „Ég hef heyrt að fólk sé meira hrætt og hafi ekki endilega áhuga á að fara í verkföll, finnist skrýtið að vera sett í þá stöðu að vera eina fólkið sem fer í verkfall og kýs um það. Þau hefðu kannski viljað, eins og ég sjálf, fá að kjósa um samninginn fyrst,“ segir Ólöf Helga. Væru greidd atkvæði um samninginn og hann felldur væri þannig ljósara að félagsmenn Eflingar væru til í meiri átök. Viðtalið við Ólöfu Helgu má hlusta á í heild sinni hér að neðan: Atburðarásin hafi verið löngu ákveðin Hún telur að meirihluti almennra félagsmanna í Eflingu vilji greiða atkvæði um þann samning sem hefur legið á borðinu í kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. „Það sem við erum að horfa á núna, verði verkfallsboðun samþykkt, þá hafa Samtök atvinnulífsins gefið út að afturvirknin verði alveg slegin út af borðinu. Það eru 115 þúsund krónur til dæmis fyrir mig sem ég myndi annars fá með laununum mínum 1. febrúar,“ segir Ólöf Helga og vísar til orða Halldórs Benjamíns sem segir að afturvirkar launahækkanir standi starfsfólki Eflingar til boða þar til verkfall skelli á. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir reynt að hræða starfsfólk Íslandshótela frá því að fara í verkfall sem hún hafi fulla trú á að félagsmenn samþykki. Í sama viðtali við Halldór Benjamín vísar hann til þess að formenn annarra stéttarfélaga hafa kallað Eflingu eins konar eyland í íslenskri stéttabaráttu. Ólöf segir þá þróun hafa hafist með ákvörðun Eflingar að taka ekki þátt í kjaraviðræðum í samfloti með Starfsgreinasambandinu. Ólöf Helga tekur einnig undir það að atburðarás síðustu vikna hafi verið löngu ákveðin. „Ég myndi segja það já. Mér finnst Sólveig Anna hafa verið alveg skýr á því, frá því hún bauð sig fram síðast, að hún ætlaði í átök,“ segir Ólöf Helga. „Hún ætlar að hreinsa til á skrifstofunni og þá eru það hópuppsagnir, hún ætlar í róttæka baráttu og þá eru það verkföll. Hún er aldrei tilbúin í samtal, það þarf alltaf að vera átök annars er það sem kemur út úr því ekki þess virði,“ bætir hún við. Öðrum hóp verði boðið að fara í verkfall Hún segir að Starfsgreinasambandið hafi unnið vel að því að ná sínum samningi sem Efling líti á sem núllpunkt. „Ég ætla ekki að halda því fram að það sé einhver brjálaður illvilji eða ásetningur að koma okkur hingað, en mér finnst Sólveig samt hafa gefið okkur skýrar vísbendingar um það að þetta væri það sem hún vildi gera,“ segir Ólöf Helga. Hún gerir ráð fyrir að Sólveig Anna sé með annan hóp félagsmanna á reiðum höndum, verði verkfallinu hafnað af hótelstarfsmönnum. „Það verður þá bara næsta verkfallsboðun. Bílstjórar, ræstingarfólk, almennir byggingarstarfsmenn,“ segir Ólöf Helga spurð út í hvaða hópar séu líklegir til að fá boð um verkfall. Hún vonar að fólk horfi gagnrýnum augum á fyrirhugað verkfall. Atkvæðagreiðslu um verkfall hjá starfsfólki Íslandshótela lýkur á mánudagskvöld. Ólöf Helga telur að verkfallsboðunin verði felld. Hún segir hins vegar að starfsfólk sé ekki nægilega vel upplýst.
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Sjá meira