Harmar að embættisfólk hafi fengið bólusetningu fyrr en forgangshópar Sylvía Hall skrifar 6. mars 2021 23:49 Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja. Mynd/Kringvarp Færeyja Sendiherra Færeyja í London fékk ásamt maka sínum bólusetningu í lok janúar eftir að mennta- og utanríkisráðuneytið þar í landi hafði sent beiðni þess efnis til landlæknisins í lok síðasta árs. Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, segir að héðan í frá verði öllum bólusetningaráætlunum fylgt og forgangshópar virtir.
Greint var frá bólusetningunum fyrr í vikunni, en ráðuneytið hafði einnig beðið um að sendiherra Færeyja í Kína fengi bólusetningu ásamt maka sínum þar sem þau vildu ekki láta bólusetja sig í Kína. Sú beiðni var send þann 17. febrúar og tók landlæknirinn Lars Fodgaard Møller vel í þá beiðni. Ekki var heimild fyrir bólusetningunum þar sem gildandi bólusetningaráætlun gerði ráð fyrir því að aðeins heilbrigðisstarfsfólk og aðrir framlínustarfsmenn yrðu bólusettir fyrst um sinn, sem og elstu aldurshóparnir. Þá var stefnt að því að klára að bólusetja alla í umönnunarstörfum fyrir lok apríl. Lars Fodgaard Møller, landlæknir Færeyja, er formaður hópsins sem sér um útfærslu bólusetninga í Færeyjum. Ráðherrann segist ekki hafa vitað af beiðninni Jenis av Rana, utanríkis- og menntamálaráðherra Færeyja og formaður Miðflokksins þar í landi, segist ekki hafa vitað að beiðnirnar hefðu verið sendar til landlæknisins. Hann hafði fyrst heyrt af málinu í útvarpsfréttum. Hann segist þó ekki telja að sendiherrarnir hafi endilega gert sér grein fyrir því að þeir væru að fara fram fyrir röðina. Kórónuveiran hafi verið í meiri útbreiðslu í London og Kína en í Færeyjum og það hafi sennilega verið ástæðan fyrir því að beiðnin var send. „Í mínu huga, sem almennur borgari, læknir og ráðherra tel ég þó að það séu aðrir hópar sem þurfi meira á bólusetningu að halda en sendiherrar, því sendiherrar eru í þeirri stöðu að geta unnið heiman frá sér og líka í löndunum sem þau fara til,“ sagði Jenis í samtali við Kringvarpið. Bárður á Steig Nielsen segir ljóst að þetta muni ekki endurtaka sig. Ráðherrar, embættismenn og aðrir opinberir starfsmenn muni þurfa að bíða eftir því að röðin komi að sér. „Bólusetningaráætlunin var sett til að tryggja það að þeir sem þurfa bóluefnið fái bóluefnið. Ég held það efist enginn lengur um það, hvorki stjórnmálamenn né embættismenn, að áætluninni verður fylgt upp á punkt og prik,“ sagði Bárður í samtali við Kringvarpið.
Færeyjar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira