Ætla að fljúga til Alicante, Tenerife, Lundúna, Kaupmannahafnar og Parísar Birgir Olgeirsson skrifar 2. maí 2021 18:25 Birgir Jónsson, forstjóri Play. Forstjóri flugfélagsins Play segir flugfélagið það vel fjármagnað að það þyrfti jafnvel ekki að hefja flug næstu tvö árin. Stefnan er þó tekin á fyrsta flug í júní og áfangastaðirnir vel þekktir meðal Íslendinga.
Forstjóri Play ræddi áform félagsins í Víglínunni í dag. Hefja á miðasölu seinni hluta maí mánaðar og stefnt að fyrstu áætlunarferð seinni hluta júní. „Þessir áfangastaðir sem við erum að fara á eru þessir hefðbundnu íslensku áfangastaðir. Við förum í stærstu borgir í Evrópu. Alicante og Tenerife og þessa staði sem Íslendingar vilja fara á og ferðamenn koma til Íslands frá,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play. Einnig er á áætlun að vera með áætlunarferðir til Lundúna, Kaupmannahafnar og Parísar. Bandaríkjaflug komi mögulega inn í myndina í lok árs til að skapa tengiflug á milli Evrópu. Forstjórinn segir félagið gríðarlega vel fjármagnað. Félagið réðst nýverið í 50 milljóna dollara fjármögnun, sem samsvarar um 6,2 milljörðum króna. „Og í raun og veru svo vel fjármagnað að við eigum nóg fé til að hefja ekki starfsemi í tvö ár. Þannig að það liggur ekkert á hjá okkur að hefja flug eða til dæmis að taka næsta skref í Bandaríkjaflug. Við getum gert þetta nákvæmlega á þeim forsendum sem hentar okkur og markaðnum.“ Um fimmtíu starfa hjá félaginu sem stendur og var auglýst eftir fólki um helgina. Hann segir tal um gerviverktöku, félagsleg undirboð eða erlendar áhafnarleigur kjaftasögur byggðar á misskilningi. „Við erum íslenskt flugfélag með íslenskt flugrekstrarfélagi. Þetta eru íslenskir fjárfestar að stórum hluta lífeyrissjóðir og aðrir slíkir fjárfestar. Við erum á leiðinni á markað. Þannig að það verður ekkert í okkar rekstri sem stenst ekki skoðun eða er eitthvað óeðlilegt. Við erum með góða samninga við íslensk stéttarfélög og munum dansa eftir þeim leikreglum sem tíðkast á íslenskum atvinnumarkaði. Annað væri óeðlilegt. Allt tal um gerviverktöku eða félagsleg undirboð eða áhafnarleigur frá lágkostnaðar löndum eru kjaftasögur og misskilningur. Ég held að þetta muni koma í ljós á rétta tímanum.“
Fréttir af flugi Play Tengdar fréttir Play birtir lista yfir stærstu hluthafa sína Flugfélagið Play hefur birt lista yfir 16 stærstu hluthafana í félaginu. Félagið lauk nýlega hlutafjárútboði þar sem fjárfest var fyrir rúmlega fjörutíu milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði vel á sjötta milljarðs króna. 21. apríl 2021 12:28 Forstjóri Play: „Þetta verður erfitt, flókið og hratt“ Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist aldrei hafa verið „eins spenntur fyrir neinu á ævinni og tækifærinu sem Play hefur til að ná árangri.“ Félagið býr sig nú undir að hefja starfsemi og er um þessar mundir meðal annars auglýst eftir framkvæmdastjórum fjármálasviðs og sölu- og markaðssviðs. 17. apríl 2021 10:54 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Sjá meira
Play birtir lista yfir stærstu hluthafa sína Flugfélagið Play hefur birt lista yfir 16 stærstu hluthafana í félaginu. Félagið lauk nýlega hlutafjárútboði þar sem fjárfest var fyrir rúmlega fjörutíu milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði vel á sjötta milljarðs króna. 21. apríl 2021 12:28
Forstjóri Play: „Þetta verður erfitt, flókið og hratt“ Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist aldrei hafa verið „eins spenntur fyrir neinu á ævinni og tækifærinu sem Play hefur til að ná árangri.“ Félagið býr sig nú undir að hefja starfsemi og er um þessar mundir meðal annars auglýst eftir framkvæmdastjórum fjármálasviðs og sölu- og markaðssviðs. 17. apríl 2021 10:54