Hundruð mótmælenda handtekin í Hvíta-Rússlandi Kjartan Kjartansson skrifar 24. september 2020 13:45 Óeirðalögreglumenn í Minsk bera burt mótmælanda í gærkvöldi. Mótmælin brutust út eftir að Lúkasjenkó lét óvænt sverja sig í embætti forseta í gær þrátt fyrir að enn standi harðar deilur um lögmæti úrslita kosninga sem fóru fram í ágúst. AP/TUT.by
Öryggissveitir Alexanders Lúkasjenkó Í Hvíta-Rússlandi handtóku á fjórða hundrað mótmælenda sem komu saman til þess að andæfa óvæntri embættistöku sitjandi forsetans í gær. Breska ríkisstjórnin segist leggja drög að því að leggja refsiaðgerðir á Hvíta-Rússlandi vegna mannréttindabrota þar. Þúsundir manna mótmæltu á götum höfuðborgarinnar Minsk og í fleiri borgum eftir að Lúkasjenkó lét óvænt halda athöfn þar sem hann sór embættiseið sem forseti í gær. Engin tilkynning var send út um athöfnina en stjórnarandstaðan í landinu og vestræn stjórnvöld telja að stórfelld svik hafi verið framin í forsetakosningunum í síðasta mánuði. Innanríkisráðuneytið segir að 364 manns hafi verið handteknir og að meirihluti þeirra sé enn í varðhaldi og bíði þess að koma fyrir dómara, að sögn AP-fréttastofunnar. Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í dag að breska ríkisstjórnin undirbúi nú að beita einstaklinga sem tengjast stjórn Lúkasjenkó refsiaðgerðum vegna mannréttindabrota í landinu. Aðgerðir séu í samvinnu við bandarísk og kanadísk stjórnvöld, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. „Í ljósi svikullar embættistöku Lúkasjenkó hef ég skipað refsiaðgerðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins að undirbúa Magnitskí-refsiaðgerðir gegn þeim sem bera ábyrgð á alvarlegum mannréttindabrotum,“ sagði Raab á þingi. Magnitskí-refsiaðgerðirnar eru nefndar í höfuðið á Sergei Magnitskí, rússneskum lögmanni, sem lést í fangelsi í Rússlandi eftir að hann lagði fram gögn sem sýndu fram á stórfelld skattsvik háttsettra rússneskra embættismanna árið 2009. Magnitskí lést eftir að hafa verið beittu harðræði í fangelsinu. Lúkasjenkó hefur barið niður mótmæli gegn sér með offorsi. Lögregla hefur beitt mótmælendur ofbeldi og saksóknarar ákæra leiðtoga þeirra og helstu stjórnarandstæðinga landsins. Ríkissaksóknari landsins hótaði mótmælendum harðari refsingum í dag. Boðaði hann einnig að harðar yrði tekið á foreldrum sem tækju börn sín með á mótmæli.
Hvíta-Rússland Bretland Tengdar fréttir Mótmæli héldu áfram eftir nýja embættistöku Lúkasjenkó Enn kom til átaka í Minsk í Hvíta-Rússlandi í gærkvöldi og beitti óeirðalögreglan öflugum vatnsbyssum og hvellsprengjum á mótmælendur og handtók um 150 manns. 24. september 2020 07:18 Lúkasjenkó lét sverja sig í embætti Óvænt innsetningarathöfn var haldin í Hvíta-Rússlandi þar sem Alexander Lúkasjenkó sór embættiseið til sjötta kjörtímabils síns í dag. 23. september 2020 10:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Sjá meira
Mótmæli héldu áfram eftir nýja embættistöku Lúkasjenkó Enn kom til átaka í Minsk í Hvíta-Rússlandi í gærkvöldi og beitti óeirðalögreglan öflugum vatnsbyssum og hvellsprengjum á mótmælendur og handtók um 150 manns. 24. september 2020 07:18
Lúkasjenkó lét sverja sig í embætti Óvænt innsetningarathöfn var haldin í Hvíta-Rússlandi þar sem Alexander Lúkasjenkó sór embættiseið til sjötta kjörtímabils síns í dag. 23. september 2020 10:29