Virðist það hafa verið hefndaraðgerð að fella líka tillögu stjórnar KSÍ Sindri Sverrisson skrifar 1. mars 2021 16:03 Viðar Halldórsson fór yfir hlutina með Rikka G í Kaplakrika í dag. Stöð 2 „Þetta eru ákveðin vonbrigði,“ segir Viðar Halldórsson, formaður FH, um þá niðurstöðu að ekki verði breyting á fyrirkomulaginu í efstu deild karla í fótbolta að sinni.
Viðar vildi líkt og fleiri forkólfar félaga í efstu deild sjá tillögu stjórnar KSÍ samþykkta, um áframhaldandi 12 liða deild en að viðbættri úrslitakeppni. Sú tillaga náði ekki 2/3 hluta atkvæða, ekki frekar en tillaga Fram um 14 liða efstu deild. „Það sem við viljum flestir er að fá fleiri leiki yfir sumarið, og með þessari tillögu KSÍ hefði gæðum leikjanna heldur ekki hrakað. Tillaga Fram hefði fjölgað leikjum einnig, en þar hefði magnið aukist en ekki gæðin. Í mínum huga var það ekki það sem þurfti,“ segir Viðar í viðtali við Ríkharð Óskar Guðnason sem sjá má hér að neðan. Klippa: Viðar Halldórsson eftir ársþing KSÍ Aðspurður hvað kæmi til að tillaga stjórnar KSÍ hefði ekki verið samþykkt, hvort undirbúningurinn hefði ekki verið nægur, svarar Viðar: „Já, ég held að maður verði að segja að undirbúningurinn var ekki nægjanlegur. Svo held ég að vonbrigðin með að 14 liða tillagan skyldi ekki ná í gegn hafi haft áhrif á að hin tillagan næði ekki í gegn, þrátt fyrir að allir á þinginu segðu að það væri nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að auka fjölda leikja. Það hafi verið hálfgerð hefndaraðgerð að fella hina tillöguna líka,“ segir Viðar. Nú er ljóst að keppnisfyrirkomulagið verður óbreytt á komandi tímabili og væntanlega einnig árið 2022, þrátt fyrir að langflestir vilji fjölga leikjum. Telur Viðar að taka þurfi málið úr höndum félaganna? „Ég held að það sé alveg ljóst á því hvernig tillaga KSÍ fór að 90 prósent félaga í efstu deild hafi viljað þessa tillögu. Ég myndi skjóta á það. En þá er það hinn hluti þingsins sem af einhverjum orsökum segir nei. Ég held að það sé alveg ljóst að lögin og þær reglugerðir sem við vinnum eftir séu orðnar barn síns tíma og það þurfi virkilega að skoða þær. Ég held að þetta þing sýni það,“ segir Viðar.
Pepsi Max-deild karla KSÍ FH Tengdar fréttir Engin breyting var versta niðurstaðan „Það er hagsmunamál fyrir leikmenn að fá fleiri leiki sem skipta máli. Þeir sinna fótboltanum allan ársins hring,“ segir Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannasamtaka Íslands, nú þegar ljóst er að ekki verða breytingar á Pepsi Max-deild karla í fótbolta að sinni. 1. mars 2021 13:02 Báðar tillögurnar felldar og áfram tólf liða efsta deild karla með tvöfaldri umferð Hvorki tillaga starfshóps KSÍ eða Fram um breytingu á efstu deild karla náðu í gegn. Þetta var staðfest á ársþingi KSÍ sem fer fram með rafrænum hætti í dag. 27. febrúar 2021 15:24 Svona var 75. ársþing KSÍ Í dag fór fram ársþing KSÍ en vegna samkomutakmarkanna vegna kórónuveirunnar fer þingið í ár fram rafrænt. 27. febrúar 2021 12:31 Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Körfubolti Dagskráin í dag: Sófasunnudagur af bestu gerð Sport Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti Fleiri fréttir „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum FH-ingar kynna besta lið sögunnar Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Rúnar Már fann neistann Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir „Ég vil vera þarna uppi að berjast um flest mörk“ „Held að Katla mín fyrirgefi mér þetta alveg“ Uppgjörið og viðtöl: Þór/KA - Þróttur 2-1 | Sandra María algjörlega óstöðvandi Uppgjör: Valur - Víkingur 7-2 | Sýning hjá Amöndu og Nadía skoraði í stórsigri Valskvenna Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Skúrkurinn endaði sem hetjan FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Sjá meira
Engin breyting var versta niðurstaðan „Það er hagsmunamál fyrir leikmenn að fá fleiri leiki sem skipta máli. Þeir sinna fótboltanum allan ársins hring,“ segir Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannasamtaka Íslands, nú þegar ljóst er að ekki verða breytingar á Pepsi Max-deild karla í fótbolta að sinni. 1. mars 2021 13:02
Báðar tillögurnar felldar og áfram tólf liða efsta deild karla með tvöfaldri umferð Hvorki tillaga starfshóps KSÍ eða Fram um breytingu á efstu deild karla náðu í gegn. Þetta var staðfest á ársþingi KSÍ sem fer fram með rafrænum hætti í dag. 27. febrúar 2021 15:24
Svona var 75. ársþing KSÍ Í dag fór fram ársþing KSÍ en vegna samkomutakmarkanna vegna kórónuveirunnar fer þingið í ár fram rafrænt. 27. febrúar 2021 12:31