Sáttur með sigurinn og vissi ekki að Fred gæti skotið með hægri Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. desember 2021 19:01 Ralf Rangnick fagnar sigurmarki sinna manna í dag. EPA-EFE/PETER POWELL Þjóðverjinn Ralf Rangnick var mjög ánægður með sinn fyrsta sigur sem þjálfari Manchester United. Það eina sem vantaði voru fleiri mörk.
Rangnick stýrði Man United gegn Crystal Palace í dag eftir að hafa horft á United vinna Arsenal 3-2 á dögunum. Hann var mjög ánægður með það sem hann sá í leik dagsins en Palace hafði unnið síðustu tvo leiki liðanna á Old Trafford. „Ég er mjög ánægður með frammistöðu liðsins. Sérstaklega fyrsta hálftímann, við pressuðum frábærlega. Það eina sem vantaði var 1-0 eða 2-0. Þökk sé því hvernig við vörðumst þá vorum við með öll völd á vellinum,“ sagði Rangnick í viðtali eftir leik en staðan var markalaus í hálfleik. Ralf Rangnick was certainly satisfied with our level of control in today's win!#MUFC | #MUNCRY— Manchester United (@ManUtd) December 5, 2021 „Að halda marki okkar hreinu var mikilvægasti hluturinn í dag. Það er það sem við þurfum að bæta hvað helst, við verðum að hætta að fá á okkur mörk. Eftir aðeins eina æfingu þá er ég mjög ánægður, við spiluðum mun betur en ég vonaðist til,“ bætti Rangnick við. „Við reyndum að spila af miklum ákafa og halda þeim eins langt frá markinu okkar og mögulegt var. Það gekk nær allan leikinn fyrir utan mögulega síðustu fimm mínútur leiksins.“ Fred kom öllum á óvart með því að skora sigurmarkið með góðu hægri fótarskoti. Það kom nýjum þjálfara hans sérstaklega á óvart. „Ég þurfti að spyrja aðstoðarmenn mína hvort þetta hefði verið hægri fóturinn á Fred, ég hélt hann gæti aðeins skotið með vinstri. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd.“ Ralf is a #MUFC | #MUNCRY pic.twitter.com/Vi37Ow0D9k— Manchester United (@ManUtd) December 5, 2021 „Uppbyggingarstarf er alltaf auðveldara ef maður nær árangri. Við verðum að halda marki okkar hreinu oftar en aðeins í dag og við þurfum að vera betri að skapa færi. Allt í allt var ég samt sáttur með frammistöðu okkar í dag,“ sagði Rangnick að endingu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Sjá meira