Fasteignasalar fúlir út í doktorsnema vegna tals um feita söluþóknun Jakob Bjarnar skrifar 19. maí 2022 11:31 Eftir að Haukur Viðar setti fram útreikninga sína um rausnarlegar söluþóknanir hafa fasteignasalar sett sig í samband við hann og tjáð honum að þetta sé nú ekki alveg svona mikið sem þeir eru að taka til sín. Haukur Viðar er til hægri á þessari samsettu mynd. vísir/getty Fasteignaverð er í hæstu hæðum. Afleidd áhrif eru þau að söluþóknun fasteignasala, sem er prósentutala, hefur þar með rokið upp úr öllu valdi. Fasteignasalar margir vilja þó ekki kannast við að þeir séu að maka krókinn.
Haukur Viðar Alfreðsson doktorsnemi í hagfræði hefur vakið máls á þessari stöðu í grein sem hann birti á Vísi auk þess sem hann var í viðtali á Bylgjunni um þetta sama mál. Í grein sinni talar Haukur Viðar um sjálftöku fasteignasala í formi söluþóknana. Hann leggur fram dæmi sem sýnir að fasteignasalar taki að meðaltali rúmlega eina og hálfa milljón fyrir að selja eign í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu í einkasölu. „Fyrstu kaupendur sem leggja út 10% af kaupverði þyrftu að safna sér rúmlega sex milljónum til að kaupa meðal fjölbýlis íbúð í höfuðborginni, en fasteignasalinn hirðir í raun strax einn fjórða af því í eigin vasa! Mánaða eða ára sparnaður fyrir nokkra klukkustunda vinnu fasteignasala.“ Misvísandi upplýsingar um söluþóknun Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum segir í svari við fyrirspurn Vísis að reglulega komi á þeirra borð mál sem tengjast rausnarlegri söluþóknun. Að sögn Breka er gjaldskrá fasteignasala 2 til 2,5 prósent. En það ríki samningafrelsi og oftast sé hægt að semja um 1 til 1,5 prósent. „Það vita því miður allt of fáir af því.“ Haukur Viðar segir í samtali við Vísi að nokkrir fasteignasalar hafi haft við sig samband, ósáttir við það að hann sé að vekja máls á þessu, þóknanirnar sem þeir eru að þiggja séu alls ekki svona háar. „Já, nokkrir fasteignasalar haft samband við mig og eru ekki sáttir. Verið að segja að þetta sé ekki raunveruleikinn. Þeir vilja meina í sínum dæmum að þeir séu að taka lægra en þá bendi ég einfaldlega á að þetta sé verðskráin sem þeir sjálfir setja á netið. Ég get ekki borið ábyrgð á því ef þeir eru að setja fram misvísandi upplýsingar um eigin rekstur á internetið.“ Segjast ekki taka nema eitt prósent Haukur Viðar vinnur nú að framhaldsgrein sem birtist innan tíðar á Vísi og tekur mið af þessum útleggingum. „Þar fer ég yfir stöðuna miðað við ef söluþóknanir eru lægri en gjaldskrá gefur til kynna og set yfir í form tímakaups miðað við mismargar vinnustundir að baki sölunnar.“ Að sögn Hauks Viðars er talsvert mikið bil á milli þeirra sem segja hann fara með rangt mál og svo annarra sem taka undir með mér. „Þeir sem segja mig fara með rangt mál eru að tala um að 1prósent söluþóknun sé ýmist bara standardinn eða þá að það sé botninn,“ segir Haukur Viðar og það fari bara eftir því hver talar. En svo eru aðrir sem segja að 1 prósent sé aldrei svo mikið sem inni í myndinni. „Raunin sé kannski 1,3 prósent án vsk, og enn aðrir á því að 1,4 prósent væru alveg sérstök kostakjör og eðlileg sala með þá talsvert hærri söluþóknun en það.“ Segjast vinna fyrir kaupinu sínu Haukur Viðar hefur í sínum dæmum nefnt að vinnan við að selja fasteign sé nákvæmlega sú sama 2015 og 2022, munurinn sé hins vegar sá að söluþóknun til fasteignasala hefur margfaldast. Eins og flestum er kunnugt er fasteignaverð nú í hæstu hæðum.vísir/vilhelm „Þeir hörðustu að tala um upp í 30 klukkustundir sem fari í eina sölu án bakvinnslu og heildin þá kannski komin í nærri heilli vinnuviku, meðan aðrir eru að tala um einn dag með öllu og spyrja hvort að inní 30 tímatölunni sé þá byggingartíminn líka,“ segir Haukur Viðar og vitnar í nýleg samtöl sín við ósátta fasteignasala sem vilja meina að þeir séu ekki að græða á tá og fingri. „En það er alveg ljóst að þeir sem eru í bransanum og ætla sér að vera þar eru með svartsýnni spá og þeir sem eru að hugsa sér til hreyfings, eða eru hættir eru talsvert nær minni greiningu.“
Fasteignamarkaður Neytendur Húsnæðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira