Útilokar ekki að apabóla berist hingað til lands Atli Ísleifsson skrifar 20. maí 2022 13:14 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir sjúkdóminn vera orsakaðan af veiru sem sé náskyld bólusóttarveiru (orthopox) og sé einkum þekktur hjá dýrum en einnig mönnum. Smit frá dýrum til manna séu sjaldgæf og sömuleiðis smit milli manna. Vísir/Vilhelm Sænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að skilgreina apabólu (e. monkeypox) sem sjúkdóm sem ógn við almannaheill. Frá þessu greindi sænska ríkisstjórnin í morgun, en fyrsta tilfelli apabólu greindist í Svíþjóð í gær.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir áréttar um sé að ræða afskaplega sjaldgæfa sýkingu en að ekki sé útilokað að hún berist hingað til lands. Almenningur og heilbrigðisstarfsmenn séu beðnir um að hafa greininguna í huga, sérstaklega hjá þeim sem hafi verið á ferð erlendis og séu með einkennandi útbrot. Síðustu daga hafa borist fréttir um sýkingar af völdum veirunnar sem veldur apabólu í nokkrum löndum í Evrópu, meðal annars Bretlandi, Portúgal, Spáni, Ítalíu, Belgíu og Svíþjóð. Sömu sögu er að segja af Norður-Ameríku en sjúkdómurinn hefur einnig greinst í Bandaríkjunum og Kanada. Náskyld bólusóttarveiru Á færslu Þórólfs Guðnasonar á vef Embættis landlæknis segir að sjúkdómur sé orsakaður af veiru sem sé náskyld bólusóttarveiru (orthopox) og sé einkum þekktur hjá dýrum en einnig mönnum. Smit frá dýrum til manna séu sjaldgæf og sömuleiðis smit milli manna. Meðgöngutími sýkingarinnar (tími frá smiti þar til einkenni koma fram) er yfirleitt ein til tvær vikur en getur verið allt upp í þrjár vikur.AP „Sjúkdómurinn hefur til þessa aðallega verið greindur í Mið- og Vestur-Afríku en er nú að greinast í Evrópu hjá einstaklingum sem sumir hverjir hafa verið í Afríku en aðrir ekki. Smit berst í fólk með náinni snertingu ýmist sem dropasmit með hósta/hnerra eða sem snertismit með vessa sem myndast í útbrotum á húð. Margir þeirra sem nú eru að greinast eru karlar sem stunda kynlíf með körlum og talið er líklegt að smit hafi borist með kynmökum í þeim hópi. Meðgöngutími sýkingarinnar (tími frá smiti þar til einkenni koma fram) er yfirleitt ein til tvær vikur en getur verið allt upp í þrjár vikur. Sjúkdómurinn er yfirleitt vægur og gengur yfir af sjálfsdáðum á einni til tveimur vikum. Hjá um 3% smitaðra getur hann hins vegar verið alvarlegur og valdið dauða einkum hjá ónæmisbældum einstaklingum og börnum. Það sem einkennir sjúkdóminn eru klæjandi útbrot sem gjarnan byrja í andliti en færast síðan niður líkamann, þar með talið kynfæri. Í framhaldinu verða útbrotin að bólum með vessa sem líkjast hlaupabólu og er vessinn smitandi. Þegar bólurnar hafa þornað er einstaklingurinn ekki lengur smitandi.“ Hafi greininguna í huga Sjúkdómsmyndin getur líkst öðrum sjúkdómum eins og hlaupabólu eða sárasótt en greining er staðfest með rannsókn á vessa úr bólunum. „Bólusetning með bóluefni gegn bólusótt er talin geta verndað gegn smiti en aðgengi að slíkum bóluefnum er takmarkað. Lyfjameðferð með veirulyfinu tecovirimat er talin geta gagnast við sýkingunni en það lyf er ekki á markaði hér. Rétt er að árétta að monkeypox er afskaplega sjaldgæf sýking og ekki útilokað að hún berist hingað til lands. Almenningur og heilbrigðisstarfsmenn eru beðnir um að hafa greininguna í huga, sérstaklega hjá þeim sem hafa verið á ferð erlendis og eru með einkennandi útbrot,“ segir Þórólfur í færslunni.
Heilbrigðismál Apabóla Tengdar fréttir Apabóla skýtur upp kollinum í Evrópu og Bandaríkjunum Sjaldgæfur sjúkdómur sem kallast apabóla hefur skotið upp kollinum í nokkrum Evrópulöndum og nú síðast í gær í Massachussetts í Bandaríkjunum. 19. maí 2022 07:40 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnahlé í sjónmáli? Erlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Innlent Fleiri fréttir Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Sjá meira
Apabóla skýtur upp kollinum í Evrópu og Bandaríkjunum Sjaldgæfur sjúkdómur sem kallast apabóla hefur skotið upp kollinum í nokkrum Evrópulöndum og nú síðast í gær í Massachussetts í Bandaríkjunum. 19. maí 2022 07:40