Hefur fulla trú á því að Efling sláist í hópinn Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. júní 2022 19:01 Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar á samningafundi í mars 2019. Vísir/vilhelm Formaður Starfsgreinasambandsins (SGS) segir að komið gæti til átaka á vinnumarkaði í vetur, verði kröfum verkalýðshreyfingarinnar um krónutöluhækkanir og lækkun á greiðslubyrði ekki mætt. Efling er ekki aðili að kröfugerð sambandsins sem afhent var Samtökum atvinnulífsins í morgun en formaður SGS hefur fulla trú á því að félagið sláist í hópinn.
Kröfugerð sambandsins fyrir hönd þúsunda launamanna var kynnt í morgun en afhendingin markar upphaf þess mikla kjaravetrar sem nú fer í hönd. Starfsgreinasambandið vill aftur fara leiðina sem farin var í lífskjarasamningnum 2019 þegar kjaraviðræður hefjast í lok sumars. Þar ber einna hæst krafa um krónutöluhækkanir. „Við vitum ekki hvort ástandið í efnahagslífinu og heimsmálum almennt verði með þeim hætti að við þurfum að gera skammtímasamning eða langtímasamning. Þannig að okkur fannst það ráðlegt að nefna ekki eina ákveðna tölu. En við erum vissulega með ýmislegt í huga hvað það varðar,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins. Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað sagt að svigrúm til launahækkana sé ákaflega takmarkað. „Verðbólgan er komin á stjá. Ég hygg að mjög margir sem koma að gerð kjarasamninga geti tekið undir það að svona eitt helsta verkefnið okkar næstu misserin, bæði fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu, sé að ná böndum á verðbólguna,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Engar áhyggjur af Eflingu Vilhjálmur bendir einmitt á að ýmislegt sé hægt að gera til að auka ráðstöfunartekjur annað en beinar launahækkanir. Lækka þurfi vexti og fá stjórnvöld, Seðlabankann og atvinnulífið að borðinu. „En ef þessir aðilar eru ekki tilbúnir til þess, þá þurfum við að mæta því af fullri hörku,“ segir Vilhjálmur. Tvö af nítján aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins eru ekki með í kröfugerðinni sem skilað var inn í morgun, þar af það langstærsta, Efling. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að ákvörðun um það hvort félagið óski eftir umboði til Starfsgreinasambandsins verði tekin á lýðræðislegum vettvangi félagsins. En Vilhjálmur hefur engar áhyggjur. „Þau eru aðeins seinni á ferðinni en hin aðildarfélögin, bara vegna mannaráðninga og annars sem þau þurftu að ráðast í. En ég hef trú á því að þau munu síðan bara koma með okkur inn í þá baráttu sem fram undan er.“
Kjaramál Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira