Tuttugu dagar í EM: „Dagný er seinust í 95 prósent tilvika“ Valur Páll Eiríksson skrifar 20. júní 2022 14:01 Ingibjörg Sigurðardóttir á ferðinni í leik gegn Hollendingum. Getty Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Grindvíkingurinn Ingibjörg Sigurðardóttir er önnur í röðinni.
Ingibjörg leikur með Vålerenga í Noregi og var valinn leikmaður ársins þar í landi er liðið vann norska meistaratitilinn árið 2020. Hún hóf feril sinn með Grindavík árið 2011 en gekk í raðir Breiðabliks árið eftir hvar hún spilaði til 2017. Eftir tvær leiktíðir með Djurgården í Svíþjóð lá leiðin til Noregs fyrir tímabilið 2020 hvar Ingibjörg hefur verið síðan. Hún varð þar bikarmeistari með Vålerenga 2020 og 2021 til auka við norska meistaratitilinn árið 2020. Ingibjörg spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2017, þá 19 ára gömul og hefur síðan spilað alls 44 landsleiki. Ingibjörg varð norskur meistari árið 2020. Fyrsti meistaraflokksleikur? 2011, þá 13 ára, á móti Þrótti. Hver hefur kennt þér mest í fótbolta? Alltof erfitt að velja einn, margir sem koma til greina! Lærði mjög mikið af Jack Majgaard Jensen sem þjálfaði mig í tvö ár hjá Vålerenga. Lag sem kemur þér í gírinn fyrir leik? Er mikil Emmsjé Gauta fan fyrir leiki, annars er norska músíkin að koma sterk inn. Mætir einhver af fjölskyldu/vinum til að styðja þig á EM? Já mjög margir! Ætli það séu ekki um 25 manns úr fjölskyldu minni að koma. Hvaða námi eða vinnu hefur þú sinnt (fyrir utan fótbolta)? Er með BA í sálfræði og svo er ég einkaþjálfari. Í hvernig skóm spilarðu? Er að prófa Puma núna og líst mjög vel á, annars er ég Nike manneskja. Uppáhalds lið í enska? Manchester United. Uppáhalds tölvuleikur? Spila mjög lítið tölvuleiki en Mario Cart er classic. Uppáhalds matur? Plokkfiskur, pizza og humar. Fyndnust í landsliðinu? Cessa fær þann titil. Gáfuðust í landsliðinu? Elín Metta. Óstundvísust í landsliðinu? Dagný er seinust í 95 prósent tilvika. Hvaða lið vinnur EM (ef ekki Ísland)? Tippa á Spán. Hvað er skemmtilegast að gera milli æfinga og leikja í landsliðsferðum? Fara í göngutúr og taka kaffi með stelpunum. Besti andstæðingur/leiðinlegasti andstæðingur? Miedema er góð. Átrúnaðargoð í æsku? Wayne Rooney, Ryan Giggs og Ronaldo. Nefndu eina staðreynd um þig sem fáir vita: Spilaði lengi vel körfubolta og á yngri landsleiki fyrir Ísland í körfunni.
EM 2022 í Englandi Fótbolti Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Enski boltinn „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Handbolti Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ Sport Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ Körfubolti Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki Fótbolti „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir Leverkusen lætur ekki undan og lagði Roma á útivelli Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Ég vil vera þarna uppi að berjast um flest mörk“ „Held að Katla mín fyrirgefi mér þetta alveg“ Uppgjörið og viðtöl: Þór/KA - Þróttur | Sandra María algjörlega óstöðvandi Uppgjör: Valur - Víkingur 7-2 | Sýning hjá Amöndu og Nadía skoraði í stórsigri Valskvenna Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti