Gæti stefnt í átök á vinnumarkaði Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. júní 2022 13:07 Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS. vÍSIR/VILHELM Starfsgreinasamband Íslands afhenti fulltrúum Samtaka atvinnulífsins kröfugerð vegna komandi kjarasamninga í morgun. Formaður sambandsins segir eitt stærsta baráttumálið að létta á greiðslubyrði launafólks. Náist það ekki stefni í óefni á íslenskum vinnumarkaði. Gildandi kjarasamningur milli Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á almennum markaði, sem undirritaður var vorið 2019, rennur út í október næstkomandi. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segir að sambandið hafi unnið að kröfugerðinni fyrir komandi kjaravetur undanfarnar vikur. En hlutirnir þróist ansi hratt. „Í dag var Seðlabankinn að tilkynna hækkun á stýrivöxtum um eitt prósent þannig að maður veltir því fyrir sér hvort að sú kröfugerð sem við leggjum fram í dag, hvort hún sé barn síns tíma, ef þannig má að orði komast. Því það er alveg ljóst að ef að Seðlabankinn og fyrirtæki, stjórnvöld og verslunareigendur ætla að halda áfram að varpa öllum kostnaðarhækkunum yfir á launafólk, heimili og neytendur þá verður verkalýðshreyfingin og launafólk að bregðast við því,“ segir Vilhjálmur. Efling ekki með Hann segir að sú stýrivaxtalækkun sem verkalýðshreyfingin hafi náð fram í kjölfar lífskjarasamningsins sé nú gengin til baka og rúmlega það. „Sá ávinningur og þær fórnir sem við vorum tilbúnir til að leggja á okkur í síðustu kjarasamningum, þær eru farnar. Þetta setur okkur í svolítið aðra stöðu en var fyrir nokkrum mánuðum síðan, ef þannig má að orði komast.“ Eitt það almikilvægasta nú sé að létta á greiðslubyrði launafólks. Ef það náist ekki eru átök á vinnumarkaði óumflýjanleg, að mati Vilhjálms. „Eins og reyndar er farið að gerast núna úti um alla Evrópu, það sást bara í Bretlandi í gær þar sem 80 prósent af öllum lestum voru stöðvaðar vegna þess að fólk var að mótmæla þeim kostnaðarhækkunum sem á þá dynja. Það stefnir í verkföll í Noregi,“ segir Vilhjálmur. Sautján af nítján aðildarfélögum SGS standa að kröfugerðinni. Tvö þeirra, Efling og Stéttarfélag Vesturlands, hafa ekki skilað inn umboði og eru því ekki með - að svö stöddu, í það minnsta. Úr fréttatilkynningu Starfsgreinasambandsins: Kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands byggir á grunni kjarasamnings SGS og SA sem tók gildi 1. apríl 2019. Kröfugerðin byggir á kröfugerðum 17 af aðildarfélögum SGS, sem samþykktar voru á félagslegum vettvangi eftir vandaða vinnu einstakra félaga. Lögð er áhersla á áframhaldandi hækkun lægstu launa og að tryggja kaupmátt launafólks. Krónutöluhækkanir á laun, eins og samið var um í núgildandi kjarasamningi, skila launafólki mestum árangri og er það krafa SGS að samið verði um krónutöluhækkanir á kauptaxta í komandi kjarasamningum. Við gerð síðustu kjarasamninga var horft til þess að samningarnir leiddu af sér lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur nú í þrígang hækkað stýrivexti og Landsbankinn spáir því að þeir verði komnir í 4,25% árið 2023, eða á sama stað og þeir voru við gerð Lífskjarasamningsins vorið 2019. SGS mun ekki una því að vaxandi verðbólgu vegna aðgerðaleysis stjórnvalda í húsnæðismálum, og erlendra hækkana verða sett á herðar okkar félagsmanna. Samtök launafólks sömdu um það í síðustu samningum að auka ráðstöfunartekjur launafólks með heildstæðum hætti, með krónutöluhækkunum, vaxtalækkunum og aðgerðum af hálfu stjórnvalda. Aðstæður þær sem nú eru í samfélaginu og efnahagsumhverfinu kalla á svipaða aðferðafræði og víðtækt samstarf og samráð til að bregðast við miklum vanda á húsnæðismarkaði, tryggja kaupmátt og öfluga grunnþjónustu um land allt. Nú eru uppi þær aðstæður í samfélaginu að aðkoma stjórnvalda að kjarasamningum mun skipta miklu máli við gerð þeirra. Stóraukin verðbólga, miklar verðhækkanir og mikill vandi á húsnæðismarkaði kalla á að stjórnvöld og SA taki höndum saman við samtök launafólks til að tryggja kaupmátt, húsnæði fyrir alla og öfluga grunnþjónustu um land allt. Tímalengd samningsins mun ráðist af þeim aðstæðum sem verða í efnahagslífi í haust og innihaldi samningsins. Kjaramál Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Veiðileyfasali fékk engar bætur dæmdar fyrir þjófnað í Kjarrá Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira
Gildandi kjarasamningur milli Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á almennum markaði, sem undirritaður var vorið 2019, rennur út í október næstkomandi. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segir að sambandið hafi unnið að kröfugerðinni fyrir komandi kjaravetur undanfarnar vikur. En hlutirnir þróist ansi hratt. „Í dag var Seðlabankinn að tilkynna hækkun á stýrivöxtum um eitt prósent þannig að maður veltir því fyrir sér hvort að sú kröfugerð sem við leggjum fram í dag, hvort hún sé barn síns tíma, ef þannig má að orði komast. Því það er alveg ljóst að ef að Seðlabankinn og fyrirtæki, stjórnvöld og verslunareigendur ætla að halda áfram að varpa öllum kostnaðarhækkunum yfir á launafólk, heimili og neytendur þá verður verkalýðshreyfingin og launafólk að bregðast við því,“ segir Vilhjálmur. Efling ekki með Hann segir að sú stýrivaxtalækkun sem verkalýðshreyfingin hafi náð fram í kjölfar lífskjarasamningsins sé nú gengin til baka og rúmlega það. „Sá ávinningur og þær fórnir sem við vorum tilbúnir til að leggja á okkur í síðustu kjarasamningum, þær eru farnar. Þetta setur okkur í svolítið aðra stöðu en var fyrir nokkrum mánuðum síðan, ef þannig má að orði komast.“ Eitt það almikilvægasta nú sé að létta á greiðslubyrði launafólks. Ef það náist ekki eru átök á vinnumarkaði óumflýjanleg, að mati Vilhjálms. „Eins og reyndar er farið að gerast núna úti um alla Evrópu, það sást bara í Bretlandi í gær þar sem 80 prósent af öllum lestum voru stöðvaðar vegna þess að fólk var að mótmæla þeim kostnaðarhækkunum sem á þá dynja. Það stefnir í verkföll í Noregi,“ segir Vilhjálmur. Sautján af nítján aðildarfélögum SGS standa að kröfugerðinni. Tvö þeirra, Efling og Stéttarfélag Vesturlands, hafa ekki skilað inn umboði og eru því ekki með - að svö stöddu, í það minnsta. Úr fréttatilkynningu Starfsgreinasambandsins: Kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands byggir á grunni kjarasamnings SGS og SA sem tók gildi 1. apríl 2019. Kröfugerðin byggir á kröfugerðum 17 af aðildarfélögum SGS, sem samþykktar voru á félagslegum vettvangi eftir vandaða vinnu einstakra félaga. Lögð er áhersla á áframhaldandi hækkun lægstu launa og að tryggja kaupmátt launafólks. Krónutöluhækkanir á laun, eins og samið var um í núgildandi kjarasamningi, skila launafólki mestum árangri og er það krafa SGS að samið verði um krónutöluhækkanir á kauptaxta í komandi kjarasamningum. Við gerð síðustu kjarasamninga var horft til þess að samningarnir leiddu af sér lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur nú í þrígang hækkað stýrivexti og Landsbankinn spáir því að þeir verði komnir í 4,25% árið 2023, eða á sama stað og þeir voru við gerð Lífskjarasamningsins vorið 2019. SGS mun ekki una því að vaxandi verðbólgu vegna aðgerðaleysis stjórnvalda í húsnæðismálum, og erlendra hækkana verða sett á herðar okkar félagsmanna. Samtök launafólks sömdu um það í síðustu samningum að auka ráðstöfunartekjur launafólks með heildstæðum hætti, með krónutöluhækkunum, vaxtalækkunum og aðgerðum af hálfu stjórnvalda. Aðstæður þær sem nú eru í samfélaginu og efnahagsumhverfinu kalla á svipaða aðferðafræði og víðtækt samstarf og samráð til að bregðast við miklum vanda á húsnæðismarkaði, tryggja kaupmátt og öfluga grunnþjónustu um land allt. Nú eru uppi þær aðstæður í samfélaginu að aðkoma stjórnvalda að kjarasamningum mun skipta miklu máli við gerð þeirra. Stóraukin verðbólga, miklar verðhækkanir og mikill vandi á húsnæðismarkaði kalla á að stjórnvöld og SA taki höndum saman við samtök launafólks til að tryggja kaupmátt, húsnæði fyrir alla og öfluga grunnþjónustu um land allt. Tímalengd samningsins mun ráðist af þeim aðstæðum sem verða í efnahagslífi í haust og innihaldi samningsins.
Úr fréttatilkynningu Starfsgreinasambandsins: Kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands byggir á grunni kjarasamnings SGS og SA sem tók gildi 1. apríl 2019. Kröfugerðin byggir á kröfugerðum 17 af aðildarfélögum SGS, sem samþykktar voru á félagslegum vettvangi eftir vandaða vinnu einstakra félaga. Lögð er áhersla á áframhaldandi hækkun lægstu launa og að tryggja kaupmátt launafólks. Krónutöluhækkanir á laun, eins og samið var um í núgildandi kjarasamningi, skila launafólki mestum árangri og er það krafa SGS að samið verði um krónutöluhækkanir á kauptaxta í komandi kjarasamningum. Við gerð síðustu kjarasamninga var horft til þess að samningarnir leiddu af sér lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur nú í þrígang hækkað stýrivexti og Landsbankinn spáir því að þeir verði komnir í 4,25% árið 2023, eða á sama stað og þeir voru við gerð Lífskjarasamningsins vorið 2019. SGS mun ekki una því að vaxandi verðbólgu vegna aðgerðaleysis stjórnvalda í húsnæðismálum, og erlendra hækkana verða sett á herðar okkar félagsmanna. Samtök launafólks sömdu um það í síðustu samningum að auka ráðstöfunartekjur launafólks með heildstæðum hætti, með krónutöluhækkunum, vaxtalækkunum og aðgerðum af hálfu stjórnvalda. Aðstæður þær sem nú eru í samfélaginu og efnahagsumhverfinu kalla á svipaða aðferðafræði og víðtækt samstarf og samráð til að bregðast við miklum vanda á húsnæðismarkaði, tryggja kaupmátt og öfluga grunnþjónustu um land allt. Nú eru uppi þær aðstæður í samfélaginu að aðkoma stjórnvalda að kjarasamningum mun skipta miklu máli við gerð þeirra. Stóraukin verðbólga, miklar verðhækkanir og mikill vandi á húsnæðismarkaði kalla á að stjórnvöld og SA taki höndum saman við samtök launafólks til að tryggja kaupmátt, húsnæði fyrir alla og öfluga grunnþjónustu um land allt. Tímalengd samningsins mun ráðist af þeim aðstæðum sem verða í efnahagslífi í haust og innihaldi samningsins.
Kjaramál Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Veiðileyfasali fékk engar bætur dæmdar fyrir þjófnað í Kjarrá Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira