Nýtingartímabil áskriftarréttinda hefst í ágúst

Icelandair Group heldur hluthafafund föstudaginn 23. júlí.
Icelandair Group heldur hluthafafund föstudaginn 23. júlí. mbl.is/Sigurður Bogi

Icelandair Group gaf út áskriftarréttindi til fjárfesta í hlutafjárútboði sínu sem lauk 17. september, en þau kveða á um heimild fjárfesta til að kaupa ný bréf í félaginu á fyrirfram ákveðnu gengi.

Hver fjárfestir hefur áskriftarréttindi fyrir allt að 25% af nafnvirði þeirra hluta sem hann fékk úthlutað og er þriðjungur þeirra til nýtingar nú. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Áskriftarréttindin samanstanda af þremur sjálfstæðum flokkum, hverjum með sitt auðkenni, nýtingartímabil og gengi.

Nýtingartímabil áskriftarréttinda í flokknum ICEAIRW130821 hefst 4. ágúst og er eindagi greiðslu þann 19. ágúst. Gengið fyrir þennan flokk er 1,13 krónur á hlut. Lokadagur viðskipta með áskriftarréttindin er 30. júlí 2021.

Frá innheimtukröfur í heimabanka

Nýting áskriftarréttindanna fer þannig fram að skráðir eigendur fá tilkynningu frá því fjármálafyrirtæki sem er vörsluaðili bréfanna um greiðslufyrirmæli. Greiðslufyrirmælin verða í formi innheimtukrafna sem birtast munu í netbanka hvers fjárfestis.

Greiðsla innheimtukrafnanna er valkvæð en greiðsla jafngildir yfirlýsingu um að fjárfestir hyggist nýta áskriftarrétt sinn.

Icelandair Group mun gefa út nýja hluti í félaginu sem jafngilda fjölda þeirra áskriftarréttinda sem nýttir verða. Reiknað er með að afhending nýrra hluta ásamt töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland fari fram eigi síðar en 31. ágúst næstkomandi.

Icelandair Group heldur hluthafafund föstudaginn 23. júlí.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK