Sterkar vísbendingar um að eldfjallagasið muni hafa áhrif á heilsu fólks Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. apríl 2021 19:00 Evgenia Ilynskaya, dósent í eldfjallafræði við Háskólann í Leeds, hefur rannsakað eldfjallagas um allan heim. Hún hefur til dæmis starfað á Suðurskautslandinu, á Hawaii, í Japan, Nicaragua og víðar. Hún kom til landsins þegar óróapúlsinn hófst og hefur verið við rannsóknir við eldstöðvarnar undanfarnar vikur. Sterklega má gera ráð fyrir að eldfjallagasið úr Geldingadölum muni leiða til aukinna öndunarfærasjúkdóma, sérstaklega hjá fólki í nálægri byggð. Börn og fólk með undirliggjandi sjúkdóma eru sérstaklega útsett fyrir menguninni.
Þetta segir Evgenia Ilynskaya, dósent í eldfjallafræði við Háskólann í Leeds. Hún hefur rannsakað áhrif eldfjallagass á heilsu fólks um allan heim, og meðal annars hér heima í kjölfar eldgossins í Holuhrauni. Rannsóknin leiddi í ljós að mengunin hafði áhrif á heilsu fólks og telur hún flest benda til þess að sama verði upp á teningnum nú – ekki síst hve nálægt byggð gosið í Geldingadölum er. „Það lítur allt út fyrir það. Við vitum að gasið sem kemur upp úr gosinu hefur áhrif bæði til skamms tíma á heilsu fólks en líka líklega til langs tíma,” segir Evgenia. „Þetta gos er frekar lítið en það er svo nálægt byggð að mér finnst líklegt, byggt á því sem við vitum til dæmis frá Holuhrauni, að fólk með undirliggjandi sjúkdóma eins og astma og lungnateppu gæti farið að finna fyrir auknum óþægindum og þurft að leita sér oftar lækniaðstoðar, eða kaupi meira af astmalyfjum.“ Fyrst og fremst sé um öndunarfæravandamál að ræða. „Svo hefur fólk kvartað undan ógleði, höfuðverkjum og hjartasjúkdómum,“ segir hún. Fólk með undirliggjandi vandamál sé útsettast en að gasið geti haft áhrif á alla. „Þetta á líka við um heilbrigð börn, því þau eru viðkvæmari fyrir loftmengun.“ Evgenia segir að gasmengun geti alltaf verið hættuleg og nefnir dæmi um eldfjallið Aso í Japan sem er vinsæll ferðamannastaður. „Þar hafa orðið dauðsföll, þegar gasmengunin hefur lagst yfir útsýnispallinn. Í öllum tilfellum var það fólk sem er með astma og lét lífið nánast samstundis. Þannig að þar var tekin ákvörðun um að setja upp viðvörunarkerfi og svæðið þá rýmt þegar gasmengunin fer yfir mjög lítinn styrk sem heilbrigt fólk finnur ekki fyrir en getur sett fólk með undirliggjandi sjúkdóma í hættu. Það hafa ekki orðið fleiri sorgleg tilfelli eftir að þetta var sett upp.“
Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Grindavík Vogar Heilsa Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fleiri fréttir Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Langt í að þeir nái sér að fullu Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira