Tryggvi Þór lætur af störfum sem forstjóri RARIK Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. janúar 2022 11:00 Tryggvi Þór Haraldsson er forstjóri RARIK. RARIK Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK ohf. hefur óskað eftir því að láta af störfum. Hann verður þó áfram starfsmaður RARIK og starfa sem ráðgjafi stjórnar og nýs forstjóra og enn fremur í sérstökum verkefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu RARIK. Fram undan er ráðningarferli til að finna nýjan forstjóra. Tryggvi Þór hefur starfað sem forstjóri RARIK í á nítjánda ár og þar á undan í ýmsum öðrum störfum innan fyrirtækisins í yfir 23 ár meðal annars sem umdæmisstjóri á Norðurlandi eystra í 10 ár. Hann hefur því starfað hjá fyrirtækinu í tæp 42 ár. Í bréfi til starfsmanna segir Tryggvi Þór að það hafi lengi verið skoðun hans að ekki sé heppilegt fyrir fyrirtæki að forsvarsmenn haldi starfi sínu allt þar til þeir neyðist til að hverfa úr því vegna aldurs. Þannig hverfi reynsla og þekking án þess að hún yfirfærist með eðlilegum hætti til eftirmanna. Heppilegra sé að víkja úr starfi stjórnanda fyrr, þótt áfram sé starfað hjá fyrirtækinu. „Ég hef í nokkurn tíma rætt þessa skoðun mína við stjórnarformann og stjórn RARIK og nú hefur orðið að samkomulagi að ég hætti í starfi forstjóra í lok marsmánaðar næstkomandi, en í þeim mánuði verð ég 66 ára,“ segir Tryggvi. „Ég veit að þessi ákvörðun kann að koma einhverjum á óvart og vissulega kallar þetta á breytingar, en þeim fylgja tækifæri. Tækifæri til að gera enn betur. Nýr forstjóri nýtur þess að hafa á bak við sig bæði frábært starfsfólk og samhenta stjórn og get ég því áhyggjulaus stigið til hliðar, þótt því fylgi bæði eftirsjá og ákveðin tilhlökkun. Mikilvægast er að þetta er að mínu mati heppilegast fyrir fyrirtækið.“ RARIK ohf. er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins sem var stofnað 1. ágúst 2006 og tók þá við rekstri Rafmagnsveitna ríkisins sem hófu starfsemi sína þann 1. janúar árið 1947. Meginhlutverk fyrirtækisins hefur frá upphafi verið að afla og dreifa raforku með hagkvæmum hætti til almennings og atvinnulífs. Í dag er aðalverkefni RARIK að dreifa raforkunni en dótturfélagið Orkusalan sér um framleiðslu og sölumál. Fyrirtækið rekur fimm virkjanir auk hita- og fjarvarmaveitna á fimm stöðum á landinu. RARIK Orkuþróun ehf. er dótturfélag RARIK sem sinnir ráðgjafa- og þróunarverkefnum á vegum RARIK hér heima og erlendis. Vistaskipti Tímamót Orkumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira
Þetta kemur fram í tilkynningu RARIK. Fram undan er ráðningarferli til að finna nýjan forstjóra. Tryggvi Þór hefur starfað sem forstjóri RARIK í á nítjánda ár og þar á undan í ýmsum öðrum störfum innan fyrirtækisins í yfir 23 ár meðal annars sem umdæmisstjóri á Norðurlandi eystra í 10 ár. Hann hefur því starfað hjá fyrirtækinu í tæp 42 ár. Í bréfi til starfsmanna segir Tryggvi Þór að það hafi lengi verið skoðun hans að ekki sé heppilegt fyrir fyrirtæki að forsvarsmenn haldi starfi sínu allt þar til þeir neyðist til að hverfa úr því vegna aldurs. Þannig hverfi reynsla og þekking án þess að hún yfirfærist með eðlilegum hætti til eftirmanna. Heppilegra sé að víkja úr starfi stjórnanda fyrr, þótt áfram sé starfað hjá fyrirtækinu. „Ég hef í nokkurn tíma rætt þessa skoðun mína við stjórnarformann og stjórn RARIK og nú hefur orðið að samkomulagi að ég hætti í starfi forstjóra í lok marsmánaðar næstkomandi, en í þeim mánuði verð ég 66 ára,“ segir Tryggvi. „Ég veit að þessi ákvörðun kann að koma einhverjum á óvart og vissulega kallar þetta á breytingar, en þeim fylgja tækifæri. Tækifæri til að gera enn betur. Nýr forstjóri nýtur þess að hafa á bak við sig bæði frábært starfsfólk og samhenta stjórn og get ég því áhyggjulaus stigið til hliðar, þótt því fylgi bæði eftirsjá og ákveðin tilhlökkun. Mikilvægast er að þetta er að mínu mati heppilegast fyrir fyrirtækið.“ RARIK ohf. er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins sem var stofnað 1. ágúst 2006 og tók þá við rekstri Rafmagnsveitna ríkisins sem hófu starfsemi sína þann 1. janúar árið 1947. Meginhlutverk fyrirtækisins hefur frá upphafi verið að afla og dreifa raforku með hagkvæmum hætti til almennings og atvinnulífs. Í dag er aðalverkefni RARIK að dreifa raforkunni en dótturfélagið Orkusalan sér um framleiðslu og sölumál. Fyrirtækið rekur fimm virkjanir auk hita- og fjarvarmaveitna á fimm stöðum á landinu. RARIK Orkuþróun ehf. er dótturfélag RARIK sem sinnir ráðgjafa- og þróunarverkefnum á vegum RARIK hér heima og erlendis.
RARIK ohf. er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins sem var stofnað 1. ágúst 2006 og tók þá við rekstri Rafmagnsveitna ríkisins sem hófu starfsemi sína þann 1. janúar árið 1947. Meginhlutverk fyrirtækisins hefur frá upphafi verið að afla og dreifa raforku með hagkvæmum hætti til almennings og atvinnulífs. Í dag er aðalverkefni RARIK að dreifa raforkunni en dótturfélagið Orkusalan sér um framleiðslu og sölumál. Fyrirtækið rekur fimm virkjanir auk hita- og fjarvarmaveitna á fimm stöðum á landinu. RARIK Orkuþróun ehf. er dótturfélag RARIK sem sinnir ráðgjafa- og þróunarverkefnum á vegum RARIK hér heima og erlendis.
Vistaskipti Tímamót Orkumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira