Sagði ekkert „persónulegt“ við hryðjuverkin í París Kjartan Kjartansson skrifar 15. september 2021 12:52 Teikning af Salah Abdeslam í réttarsal í París í síðustu viku. Réttar er yfir tuttugu manns vegna hryðjuverkanna í París árið 2015, þar af sex að þeim fjarstöddum. AP/Noelle Herrenschmidt Eini eftirlifandi liðsmaður Ríkis íslams úr hryðjuverkaárásinni í París árið 2015 sagði þau ekki hafa haft neitt persónulegt gegn þeim 130 manns sem þau myrtu. Fyrir dómi í Frakklandi sagði hann hryðjuverkin hafa verið hefnd fyrir loftárásir Frakka í Sýrlandi og Írak.
Salah Abdeslam er á meðal tuttugu sakborninga sem svara nú til saka fyrir hryðjuverkaárásina sem var mannskæðasta ofbeldisverk í Frakklandi frá seinna stríði og á meðal verstu hryðjuverka sem framin hafa verið í Evrópu. Abdeslam flúði París þegar sjálfsmorðssprengjuvesti hans virkaði ekki 13. nóvember árið 2015. Á sama tíma gerðu níu félagar hans úr Ríki íslams árásir í borginni, vopnaðir sprengjuvestum og skotvopnum. Árásirnar hófust á þjóðarleikvanginum þar sem franska karlalandsliðið í knattspyrnu atti kappi við það þýska. Mesta mannfallið var þó í Bataclan-tónleikahöllinni. Þegar Abdeslam tók til máls í fyrsta skipta skipti við réttarhöldin í morgun var hann klæddur í svart frá toppi til táar og neitaði að taka niður svarta grímu. Sagði hann hryðjuverkin hafa verið svar Ríkis íslams gegn árásum franska hersins á samtökin í Sýrlandi og Írak, að sögn AP-fréttastofunnar. „Við börðumst við Frakkland, við réðumst á Frakkland, við beindum spjótum okkar að óbreyttum borgurum. Þetta var ekkert persónulegt gegn þeim,“ sagði Abdeslam. Viðurkenndi hann að sú fullyrðing væri sláandi. Henni væri ekki ætlað að strá salti í sárin heldur að sýna þeim sem liðu ólýsanlegan harm einlægni. Neitaði aðild að „illskunni“ í París Á meðal sakborninganna tuttugu eru tveir menn sem Abdeslam fékk til að sækja sig í París og aka með sig til Brussel þar sem hann var síðar handtekinn. Flestir hryðjuverkamannanna voru ýmsist franskir eða belgískir. Sex sakborninganna hafa ekki náðst og er réttað yfir þeim að þeim fjarstöddum. Mohammed Abrini er á meðal sakborninganna í Frakklandi en hann var liðsmaður sama hópsins og Abdeslam. Hann tók þátt í annarri hryðjuverkárás Ríkis íslams á flugvelli og neðanjarðarlestarkerfi Brussel í mars árið 2016 þar sem 32 voru myrtir. Abrini yfirgaf París nóttina sem hryðjuverkin þar voru gerð. „Ég var hvorki leiðtogi né arkítekt þeirrar ilsku sem átti sér stað í Frakklandi. Ég lagði hvorki til skipulagslega né fjárhagslega aðstoð,“ sagði hann við réttarhöldin.
Frakkland Tengdar fréttir Réttarhöld vegna hryðjuverkanna í París hafin Réttarhöld hefjast í dag yfir tuttugu mönnum sem sakaðir eru um aðild að hryðjuverkaárásunum í París haustið 2015. Alls létust 130 manns og hundruð særðust þegar níu menn vopnaðir byssum og sprengjuvestum létu til skarar skríða við þjóðarleikvanginn Stade de France, tónleikahúsinu Bataclan og veitingastöðum og kaffihúsum víða um borgina. 8. september 2021 10:51 Einn hryðjuverkamannanna í París sakfelldur Dómstóll í Belgíu hefur dæmt Sala Abdeslam, eina eftirlifandi sakborninginn sem grunaður er um aðild að hryðjuverkaárásinni í París árið 2015, fyrir að hafa skotið að lögreglumönnum sem reyndu að handtaka hann. 23. apríl 2018 08:28 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira
Réttarhöld vegna hryðjuverkanna í París hafin Réttarhöld hefjast í dag yfir tuttugu mönnum sem sakaðir eru um aðild að hryðjuverkaárásunum í París haustið 2015. Alls létust 130 manns og hundruð særðust þegar níu menn vopnaðir byssum og sprengjuvestum létu til skarar skríða við þjóðarleikvanginn Stade de France, tónleikahúsinu Bataclan og veitingastöðum og kaffihúsum víða um borgina. 8. september 2021 10:51
Einn hryðjuverkamannanna í París sakfelldur Dómstóll í Belgíu hefur dæmt Sala Abdeslam, eina eftirlifandi sakborninginn sem grunaður er um aðild að hryðjuverkaárásinni í París árið 2015, fyrir að hafa skotið að lögreglumönnum sem reyndu að handtaka hann. 23. apríl 2018 08:28