Frost í Reykjavík jafngildi 16 stigum í trúlega mesta kuldakasti síðan 2013 Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. desember 2020 23:41 Spákort ECMWF sem sýnir í litum hita í 850 hPa. EInar Sveinbjörnsson/Blika.is Kuldakastið sem gengur yfir landið næstu daga verður trúlega það mesta í Reykjavík í sjö ár. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í færslu á vefnum Bliku.is. Þegar vindkæling er tekin með í reikninginn megi búast við að frost í höfuðborginni jafngildi sextán stigum á fimmtudag og föstudag. „
Norðan loftið sem steypist yfir okkur næstu daga er hreinræktað heimskautaloft. Kjarni þess fer suður yfir vestanvert landið,“ segir Einar í færslu sinni. Hann bendir á að vetrarkuldi sé almennt af tvennum toga: annars vegar þegar hæglátt er og stjörnubjart en hins vegar þegar loft kemur frá köldum svæðum með strekkingi og stundum hvassri norðanátt. „Þá mælist kannski ekki jafn mikið frost, en það bítur í vindinum. Þannig er það einmitt nú,“ segir Einar. Þannig megi vænta sex til sjö stiga frosts á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudag og föstudag og vindi um 10 m/s. Sé „rykið dustað“ af vindkælingartölunum muni frost við Veðurstofuna Í Reykjavík á hádegi á fimmtudag jafngilda nærri sextán stigum. „Sé horft á vindinn saman með kulda loftsins þarf líklega að fara aftur til 2013 (4-6 des.) til að finna eitthvað sambærilegt. Þá var vindur heldur hægari, en meira frost. „Kuldagæði“ hins vegar svipuð. Mun kaldari tilvik má auðveldlega finna áður fyrr á árum s.s á milli 1965-1985,“ segir Einar. „Ef til vill er þörf á kuldaviðvörun þar sem dúða þarf leikskólabörn sérstaklega á fimmtudag og föstudag (kalt fram á laugardag) og aðrir úti við hugi að skjólgóðu höfuðfati og hlýjum vetrarskóm. Ullarvetlingar koma líka í góðar þarfir.“
Veður Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Skotárás við heimili Drake Erlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Fleiri fréttir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira