Kökuskreytingameistari frá Rússlandi slær í gegn á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 8. maí 2021 20:05 Angelika Dedukh, kökuskreytingarkona með meiru frá Rússlandi en hún býr á Selfossi með Þresti og börnum. Kökurnar hennar hafa slegið á gegn á Selfossi en hún bakar m.a. eftir pöntunum og skreytir kökurnar eins og óskað er eftir. Magnús Hlynur Hreiðarsson Töskukaka, hundakaka, harmonikkukaka og hestakaka eru hluti af þeim kökum sem Angelika Dedukh frá Rússlandi bakar á Selfossi en skreytingarnar á kökunum eru með því flottara sem sést.
Þegar Angelika er búin með sinn vinnudag í Vallaskóla á Selfossi fer hún heim í eldhúsið sitt og töfrar fram allskonar kökur þar sem hún leggur mikinn metnað í skreytingarnar. Hér er t.d. listræn kaka með fullt af nöglum, sem eru allir úr súkkulaði. Angelika elskar að baka og skreyta enda á hún sínar gæðastundir í eldhúsinu. Hún er með Facbooksíðu þar sem hún sýnir kökurnar sínar og svo bakar hún eftir pöntunum. „Ég er aðallega að baka súkkulaði kökur, stundum vanilluköku, karamellu og gulróta kökur. Á Íslandi eru krakkar mjög hrifnir af súkkulaði, Þess vegna baka ég oftast súkkulaðikökur,“ segir Angelika. Töskukakan, sem Angelika bakaði í vikunni, ótrúlega falleg kaka og vel skreytt.Magnús Hlynur Hreiðarsson Kökurnar hennar eru listaverk því hún skreytir þær svo fallega. „Já, ég elska að skreyta kökurnar mínar.“ Angelika bakaði í vikunni töskuköku en handbragðið þar var ótrúlega flott þegar það var búið að skreyta hana, allt hægt að borða á kökunni, meira að segja blómin. Hundakaka frá AngelikuAðsend Þröstur Gunnar, eiginmaður Angeliku hrósar henni í hástert fyrir kökurnar og er að rifna úr stolti af konunni sinni. „Já, hún er dugleg að baka og dugleg að skreyta, það er sérgreinin hjá henni, skreytingar á kökum, það er ekkert sem ekki er hægt að gera enda er ekkert sem hún getur ekki gert, ég segi það, það er alveg ótrúlegt að sjá vinnubrögðin hennar.“ Harmonikkukaka, ótrúlegt listaverk.Magnús Hlynur Hreiðarsson Þröstur segir þó einn galla á gjöf Njarðar, hann hafi bætt á sig nokkrum kílóum eftir að hann fór að búa með Angeliku. „Já, já, maður finnur svona aðeins þyngdaraukningu á því að það séu til svona margar kökur á heimilinu,“ segir hann um leið og hann strýkur á sér vömbina skellihlægjandi. Angeliku er margt til lista lagtAðsend
Árborg Kökur og tertur Handverk Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira