Þörf á nýrri þarfagreiningu fyrir nýja spítalann Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 18. nóvember 2020 14:40 Ráðast þarf í nýja þarfagreiningu fyrir uppbyggingu nýs Landspítala því margt hefur breyst frá því sú fyrri var gerð. Vísir aðsend/Vilhelm
Ráðast þarf í nýja þarfagreiningu fyrir nýjan Landspítala því fjölmargt hefur breyst frá því sú eldri var gerð. Formaður stýrihóps um uppbyggingu spítalans bendir á að gæta þurfi vel að því að öll sú reynsla sem hlotist hefur í faraldrinum verði nýtt við hönnun og skipulag. Heilbrigðisráðherra skipaði stýrihópinn í lok ágúst síðastliðnum. Hann er ekki sjálfstæð stjórnsýslueining heldur er honum falið stefnumörkunar-, samráðs- og samhæfingarhlutverk varðandi framkvæmdir við nýjan Landspítala. Verkefnið er á meðal stærstu ríkisframkvæmda lýðveldissögunnar. Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður hópsins, segir að ráðast þurfi í aðra þarfagreiningu fyrir nýjan spítala en sú fyrri var gerð árið 2008. „Við vitum auðvitað að það er stöðug þróun í heilbrigðisgeiranum og breyttar aðstæður að ýmsu leyti og þetta kallar allt saman á nýja þarfagreiningu. Það þarf að endurmeta þarfir fyrir húsnæði og það þarf að endurskoða skipulag svæða og það þarf að taka ákvarðanir um nýtingu eldri bygginga og eins um ráðstöfun þeirra bygginga sem verða á endanum ekki nýttar áfram í starfsemi Landspítalans“ Í því sambandi þurfi að gæta vel að því að öll sú reynsla sem hlotist hefur í faraldrinum skili sér í hönnun og skipulagi spítalans. Forsætisráðherra sagði í gær að hópsýkingin og harmleikurinn á Landakoti undirstrikaði þörfina á nýjum spítala, sem muni gjörbreyta stöðu sjúkrahúsmála. Ekki liggur þó fyrir hvort gert sé ráð fyrir starfsemi Landskots á nýjum stað en Katrín segir spítalann gefa aukið svigrúm til að bæta eldri rými. Unnur segir að það sé hlutverk heilbrigðisráðuneytisins að gera forsendugreiningu á því hvaða umbætur séu brýnastar. Það sé því ekki tímabært að segja til um framtíðarhúsnæði fyrir starfsemina. „Verkefni stýrihópsins er langtímaverkefni og okkur er ekki ætlað að vera í því að bregðast við einhverjum verkefnum sem þarf að leysa til skemmri tíma heldur er það okkar hlutverk að reyna að skilgreina hvernig spítalinn á að vinna til langrar framtíðar, endurmeta þarfir fyrir húsnæði og koma með tillögur um hvernig nýting eldri bygginga og ráðstöfun annarra bygginga verður háttað – og hvað verður um einstakar byggingar í því sambandi er bara of snemmt fyrir okkur að segja til um gagnvart okkar hlutverki í stýrihópnum.“
Landspítalinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Staðan á Landakoti undirstrikar þörfina á nýjum Landspítala Forsætisráðherra segir ástandið á Landakoti undanfarnar vikur sýna að rétt var að ráðast í byggingu nýs Landspítala. Hann muni létta á þjónustu við eldri sjúklinga á öðrum stöðum ásamt átaki í byggingu hjúkrunarrýma fyrir eldri borgara. 17. nóvember 2020 20:01 „Fullkominn stormur“ á Landakoti: Þrjár tegundir inn og engin loftræsting „Fullkominn stormur“ er hugtakið sem Lovísa Björk Ólafsdóttir, sérfræðilæknir í smitsjúkdómum og sýkingavörnum, notar um þær aðstæður sem urðu þess valdandi að hópsýking braust út á Landakoti í október. Tólf greindu hafa látist en hópsýkingin er enn ekki yfirstaðin. 13. nóvember 2020 15:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Fleiri fréttir „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Sjá meira
Staðan á Landakoti undirstrikar þörfina á nýjum Landspítala Forsætisráðherra segir ástandið á Landakoti undanfarnar vikur sýna að rétt var að ráðast í byggingu nýs Landspítala. Hann muni létta á þjónustu við eldri sjúklinga á öðrum stöðum ásamt átaki í byggingu hjúkrunarrýma fyrir eldri borgara. 17. nóvember 2020 20:01
„Fullkominn stormur“ á Landakoti: Þrjár tegundir inn og engin loftræsting „Fullkominn stormur“ er hugtakið sem Lovísa Björk Ólafsdóttir, sérfræðilæknir í smitsjúkdómum og sýkingavörnum, notar um þær aðstæður sem urðu þess valdandi að hópsýking braust út á Landakoti í október. Tólf greindu hafa látist en hópsýkingin er enn ekki yfirstaðin. 13. nóvember 2020 15:06