Frestur vegna tilkynningar um örorku ekki liðinn og Vörður þarf að greiða bætur Smári Jökull Jónsson skrifar 4. desember 2021 07:02 Landsréttur hafnaði kröfum tryggingafélagsins Varðar um að of langt hefði liðið frá því að maðurinn vissi af varanlegum afleiðingum veikinda sinna þar til hann sendi inn tilkynningu um tjón. Vísir / Vilhelm Tryggingafélagið Vörður var í gær dæmt til að greiða dánarbúi manns bætur vegna örorkutryggingar en ágreiningur var um hvenær manninum var ljóst um varanlegar afleiðingar sjúkdóms sem hann greindist með.
Landsréttur staðfesti dóm Héraðsdóm Reykjavíkur frá því í júlí 2020 en Vörður áfrýjaði þeim dómi og krafðist þess að bótaskylda væri felld niður. Maðurinn höfðaði málið í janúar 2019 en lést af völdum lungnasjúkdóms síðar sama ár og tók dánarbú hans við málsaðild. Ágreiningur aðila málsins snýr að því hvort réttur mannsins til greiðslu bóta úr örorkutryggingu hafi fallið niður þar sem krafa hans um bætur hafi ekki hafi ekki verið gerð innan árs frá því að hann fékk vitneskju um atvik sem krafan er reist á. Tjónstilkynningin barst tryggingafélaginu 29.september 2017 og niðurstaða málsins réðst af því hvort maðurinn hafi haft vitneskju um það í september 2016 að varanlegt líkamstjón hefði hlotist af lungnasjúkdómnum sem hann þjáðist af. Í dóminum kemur fram að Vörður hafi haldið því fram að tilkynningarskylda hafi stofnast í október 2015. Sjúkdómurinn fylgikvilli af meðferð við hvítblæði Í upphaflega dómi Héraðsdóms Reykjavíkur er sagt frá því að maðurinn hafi greinst með bráðahvítblæði í júní 2014. Lungnasjúkdómur sem hann greindist með í kjölfarið og að lokum dró hann til dauða var fylgikvilli af meðferð við hvítblæðinu sem hann læknaðist af. Maðurinn hélt því fram að honum hafi fyrst orðið það ljóst í kjölfarið örorkumats í ársbyrjun 2017 að ástand hans vegna lungnasjúkdómsins væri orðið varanlegt og hann hafi þá farið að kanna rétt sinn til bóta. Í tjónstilkynningu í september 2017 tók hann fram að erfitt væri að „tímasetja sjúkdóminn þar sem eitt hefur tekið við af öðru, þetta hafi bara þróast svona með tímanum“. Hafði ekki vitneskju um að lungnasjúkdómur hefði leitt til varanlegs líkamstjóns Í máli Varðar fyrir dómi kemur fram að samkvæmt vottorði læknis á Reykjalundi, en hann svaraði spurningum að beiðni Varðar með samþykki mannsins, hafi maðurinn komið á göngudeild Reykjalundar í október 2015. Þar var tekin tölvusneiðmynd af lungum og framkvæmd berkjuspeglun. Segir að eftir þessa skoðun hafi mátt telja öruggt að greining á lungnasjúkdómnum hafi legið fyrir. Vörður fór fram á að umræddur læknir bæri vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og var fallist á það. Við munnlegan flutning málsins fyrir Landsrétti var sú skýring gefin að læknirinn hefði forfallast. Þá hafi ekki komið fram ósk um að vitnið yrði leitt fyrir Landsrétt. Landsréttur féllst ekki á rök Varðar og segir í dómnum að ekki sé hægt að slá því föstu á grundvelli vottorðs læknisins að maðurinn hafi í október 2015 haft vitneskju um að lungnasjúkdómur hans hafi leitt til varanlegs líkamstjóns. Þá sýna önnur gögn sem fyrir liggja í málinu ekki fram á að maðurinn hafi verið meðvitaður um varanlegar afleiðingar lungnasjúkdómsins fyrir lok september 2016. Réttur dánarbús mannsins til greiðslu bóta frá Verði var því staðfestur af Landsrétti. Auk bótanna þarf Vörður að greiða málskostnað vegna málsins.
Dómsmál Tryggingar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira