Kristján Þór skipar Benedikt ráðuneytisstjóra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júlí 2021 12:38 Benedikt Árnason er nýr ráðuneytisstjóri. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Benedikt Árnason í embætti ráðuneytisstjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Benedikt tekur við af Kristjáni Skarphéðinssyni fráfarandi ráðuneytisstjóra. Þetta kemur fram á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Benedikt Árnason lauk cand. oecon gráðu í þjóðhagfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og meistaragráðu í þjóðhagfræði frá Toronto Háskóla (e. University of Toronto) árið 1991. Árið 1993 lauk hann MBA gráðu í fjármálum og stefnumótun frá sama háskóla. „Benedikt býr yfir mikilli reynslu af störfum innan Stjórnarráðsins og íslenskrar stjórnsýslu. Benedikt hefur innsýn inn í starf ráðuneytisstjóra hvort sem er litið er til reksturs, stjórnunar eða þeirra stjórnsýsluverkefna sem starfinu fylgja. Hann er reyndur verkefnastjóri og hefur haldið vel utan um stór verkefni á vegum íslenskra stjórnavalda,“ segir á vef ráðuneytisins. Hann starfaði hjá Þjóðhagsstofnun frá árinu 1988 til 1993 í hlutastarfi með námi og fullu starfi frá árinu 1993 til 1994. Árið 1994 tók hann við starfi skrifstofu- og fjármálastjóra hjá Vita- og hafnarmálastofnun og gegndi því fram til ársins 1995. Benedikt hóf störf í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu árið 1996. Fyrst sem deildarstjóri og síðar skrifstofustjóri fjármálamarkaðar og staðgengill ráðuneytisstjóra árið 1998 og starfaði sem slíkur fram til ársins 2004. Árið 2005 hóf Benedikt störf sem einn af aðstoðarframkvæmdastjórum Norræna fjárfestingabankans í Helsinki og svæðisstjóri fyrir Ísland. Þar starfaði hann fram til ársins 2008 en þá tók hann við starfi sem aðstoðarforstjóri Askar Capital fjárfestingabanka hf. Síðar sama ár varð Benedikt forstjóri sama fyrirtækis og starfaði sem slíku fram til ársins 2010. Árið 2010 til 2013 var Benedikt aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins. Hann hóf störf árið 2013 í forsætisráðuneytinu sem efnahagsráðgjafi forsætisráðherra og ráðherranefnda ríkisstjórnarinnar og hefur frá árinu 2016 og fram til dagsins í dag gegnt embætti skrifstofustjóra skrifstofu stefnumála og síðar staðgengill ráðuneytisstjóra. Alls bárust 13 umsóknir um embættið sem var auglýst þann 1. maí sl. Hæfnisnefnd mat þrjá umsækjendur hæfasta til þess að gegna embættinu. Ráðherra boðaði í framhaldi viðkomandi til viðtals og var það mat ráðherra að Benedikt væri hæfastur umsækjenda til að taka við embætti ráðuneytisstjóra.
Vistaskipti Stjórnarskrá Sjávarútvegur Landbúnaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Sjá meira