fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Fréttir

200 manna samkomutakmarkanir og skemmtistaðir loka fyrr

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 23. júlí 2021 19:08

Skjáskot Vísir.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjarlægðarmörk verða einn metri og samkomuhámark 200 manns. Skemmtistöðum verður gert að loka á miðnætti. Þetta kom fram í viðtali Svandísar Svavarsdóttur við Vísir.is að loknum þriggja klukkustunda löngum ríkisstjórnarfundi á Hótel Valaskjálf Egilsstöðum.

Breytingarnar taka gildi á miðnætti á laugardagskvöld.

Ágreiningur var á fundinum en niðurstaðan var sú að fylgja minnisblaði sóttvarnalæknis að mestu, segir Svandís.

Aðgerðirnar eru í gildi til 13. ágúst.

Grímuskylda verður tekin upp við tilteknar aðstæður en það verður kynnt betur síðar.

Katrín Jakobsdóttir forstæsiráðherra sagði við Stöð 2 að algjör samstaða hefði orðið um niðurstöðuna þó að meiningarmunur hefði verið uppi. Það skal áréttað að fundurinn tók þrjá klukkutíma og ekki voru önnur mál á dagskrá.

Bjarni Benediktsson sagði of snemmt að fullyrða að aðgerðirnar myndu valda bakslagi í þeim efnahagsbata sem nú er að verða.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Stuðningsmenn Njarðvíkur sagðir hafa brotið fjölda sæta á heimavelli Vals – „Íþróttir kalla fram tilfinningar í fólki“

Stuðningsmenn Njarðvíkur sagðir hafa brotið fjölda sæta á heimavelli Vals – „Íþróttir kalla fram tilfinningar í fólki“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ellefu hljóta myndarlegan styrk upp á 3,5 milljónir króna frá stofnun Leifs Eiríkssonar

Ellefu hljóta myndarlegan styrk upp á 3,5 milljónir króna frá stofnun Leifs Eiríkssonar
Fréttir
Í gær

Atvik sem fór framhjá flestum í gær – Trompaðist gjörsamlega þegar hann var tekinn af velli

Atvik sem fór framhjá flestum í gær – Trompaðist gjörsamlega þegar hann var tekinn af velli
Fréttir
Í gær

169 einstaklingar sem finnast ekki

169 einstaklingar sem finnast ekki