Innlent

Tilkynnt um svartan reyk frá Eldsmiðjunni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Talsverður viðbúnaður var við Suðurlandsbraut 12 fyrir stuttu.
Talsverður viðbúnaður var við Suðurlandsbraut 12 fyrir stuttu. Vísir/Vilhelm

Talsverður viðbúnaður var við Suðurlandsbraut 12 nú fyrir stuttu og voru bæði slökkvilið og lögregla á staðnum. Að sögn slökkviliðs tilkynnti vegfarandi um svartan reyk stíga upp frá húsinu. 

Slökkvilið fór á staðinn að kanna málið en í ljós kom að kokkar á pizzastaðnum Eldsmiðjunni höfðu verið að kynda í pizzaofninum og reykurinn hafi orsakast af því. Enginn eldur er kviknaður í húsinu. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×