Fyrirliðinn áfram í Vestmannaeyjum

Hanna Kallmaier í leik með ÍBV gegn Tindastóli í sumar.
Hanna Kallmaier í leik með ÍBV gegn Tindastóli í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Þýska knattspyrnukonan Hanna Kallmaier hefur samið við ÍBV um að leika áfram með kvennaliði félagsins á næsta keppnistímabili en hún hefur framlengt samning sinn til eins árs.

Hanna er 27 ára miðjumaður sem hefur verið í lykilhlutverki hjá ÍBV undanfarin tvö ár og tók við stöðu fyrirliða fyrir nýliðið keppnistímabil. Þá hefur hún verið valin leikmaður ársins hjá félaginu.

Hún kom til ÍBV frá Kvarnsveden í sænsku B-deildinni fyrir keppnistímabilið 2020 en lék áður með varaliði Bayern München í þýsku B-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert