Lyfjaeftirliti teflt fram gegn veðmálasvindli Jakob Bjarnar skrifar 31. janúar 2023 11:04 Ásmundur Einar hefur nú falið Lyfjaeftirliti Íslands að berjast gegn hagræðingu úrslita í íþróttum og þar með veðmálasvindli. vísir/vilhelm Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur falið Lyfjaeftirliti Íslands að sinna fræðslu og forvarnarstarfi í baráttunni gegn hagræðingu úrslita í íþróttum.
Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins en þessari tilkynningu er fylgt úr hlaði með orðunum þeim að íþróttir þurfi „ávallt að fara fram af heilindum og mikilvægt að fyrirbyggja hvers kyns óheiðarleika eða hagræðingu úrslita.“ Fréttir hafa reglulega verið fluttar af því að átt hafi verið við úrslit í íþróttakappleikjum en gríðarlegar fjárhæðir geta verið undir í veðbönkum en veðjað er grimmt á úrslit. Í þessum mánuði var til að mynda flutt frétt af því að Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hafi dæmt í máli Sigurðar Gísla Bond Snorrasonar. Hann veðjaði á mörg hundruð leiki, þar á meðal sína eigin. „Hefur nefndin úrskurðað fyrrum samningsleikmann Aftureldingar í bann frá allri þátttöku í knattspyrnu keppnistímabilið 2023.“ Hins vegar liggur ekki í augum uppi hvernig þessi vandi snýr að hlutverki Lyfjaeftirliti Íslands. Ásmundur Einar sér hins vegar tenginguna. Íslensk stjórnvöld hafi staðfest sáttmála Evrópuráðsins gegn hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum sem öðlast gildi 1. apríl næstkomandi. Og með alþjóðleg viðmið að leiðarljósi hefur ráðherra falið Lyfjaeftirliti Íslands að sinna fræðslu og forvarnarstarfi í baráttunni gegn þessari ósvinnu. Og bætist þá við það hlutverk Lyfjaeftirlits að sinna lyfjaeftirliti í íþróttum hérlendis. ,,Það var mikið framfaraskref þegar ráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stofnuðu Lyfjaeftirlit Íslands. Með virkri fræðslu og eftirliti fyrirbyggjum við lyfjamisnotkun í íþróttum og stuðlum að heiðarlegri íþróttaiðkun,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. „Nú útvíkkum við það hlutverk með forvörnum gegn hagræðingu úrslita. Þetta rúmast vel innan sömu stofnunar enda markmiðið hið sama, að stuðla að því að íþróttir fari fram af heilindum.“ Lyfjaeftirlitið tekur þátt í alþjóðastarfi og er falið að tryggja að eftirlit og reglur hérlendis séu í samræmi við alþjóðasamninga UNESCO og Evrópuráðsins um lyfjaeftirlit og lyfjareglur Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA). Er gert ráð fyrir því að Lyfjaeftirlitið útbúi fræðsluefni – standi fyrir fyrirlestrum og fræðslufundum fyrir íþróttahreyfinguna.
Stjórnsýsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Fjárhættuspil Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira