Tilræðismaður Reagans verður frjáls allra ferða sinna Þorgils Jónsson skrifar 27. september 2021 18:31 John Hinckley Jr. verður brátt frjáls allra sinna ferða, um 40 árum eftir að hafa reynt að ráða Reagan forseta af dögum. John Hinckley Jr. sem gerði tilraun til að ráða Ronald Reagan af dögum árið 1981 verður brátt frjáls allra ferða eftir að hafa náð samkomulagi við dómsmálaráðuneytið þar í landi.
Hinckley, sem skaut Reagan fyrir utan hótel í Washingtonborg, var úrskurðaður ósakhæfur á sínum tíma. Þrír aðrir særðust í árásinni, þar á meðal fjölmiðlafulltrúi forsetans, sem lamaðist. Hinckley var haldinn þráhyggju fyrir leikkonunni Jodie Foster og vonaðist til þess að ná athygli hennar með ódæðinu. Reagan forseti var fékk skot í vinstri handarkrika. Skotið hafnaði í lunga hans og olli alvarlegum innvortis blæðingum. Þrír aðrir særðust í árásinni, þar á meðal Jim Brady, fjölmiðlafulltrúi forsetans, sem lamaðist og lést árið 2014.Mynd/AP Hinckley sat inni á réttargeðdeild fram til ársins 2016, en hefur síðan búið hjá móður sinni í Virginíuríki undir nokkrum skilyrðum. Hann var undir eftirliti lækna og sálfræðinga og mátti ekki eiga byssu. Þá mátti hann ekki hafa samband við börn Reagans, önnur fórnarlömb eða ættingja þeirra og ekki heldur við Jodie Foster. Þeim verður nú aflétt á næsta ári, enda þykir ekki standa ógn af honum lengur. Hinckley var talinn ósakhæfur og dvaldi á réttargeðdeild allt til ársins 2016.Mynd/AP „Ef hann hefði ekki reynt að drepa forsetann hefði honum verið sleppt skilyrðislaust fyrir löngu síðan,“ hefur AP eftir alríkisdómaranum sem kvað upp þennan úrskurð. Allir aðilar væru sáttir við stöðuna, í ljósi framkomu og greininga á Hinckley. Hann hefði ekki sýnt neina ofbeldistilburði eða áhuga á skotvopnum frá árinu 1983. Hinckley virðist una hag sínum vel og hefur síðasta árið flutt frumsamin ástarlög á YouTube-rás sinni.
Bandaríkin Ronald Reagan Tengdar fréttir Árásarmanni Reagan sleppt úr haldi John Hinckley Jr. mun yfirgefa geðsjúkrahús sem hann hefur verið á í tæp 35 ár. 27. júlí 2016 14:26 James Brady látinn James Brady, fyrrverandi blaðafulltrúi Hvíta hússins í Bandaríkjunum, lést í gær 73 ára að aldri. Brady var bundinn við hjólastól frá árinu 1981 þegar hann særðist alvarlega í skotárás sem gerð var á þáverandi forseta Bandaríkjanna, Ronald Reagan. 5. ágúst 2014 08:20 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Árásarmanni Reagan sleppt úr haldi John Hinckley Jr. mun yfirgefa geðsjúkrahús sem hann hefur verið á í tæp 35 ár. 27. júlí 2016 14:26
James Brady látinn James Brady, fyrrverandi blaðafulltrúi Hvíta hússins í Bandaríkjunum, lést í gær 73 ára að aldri. Brady var bundinn við hjólastól frá árinu 1981 þegar hann særðist alvarlega í skotárás sem gerð var á þáverandi forseta Bandaríkjanna, Ronald Reagan. 5. ágúst 2014 08:20