Vara við „villandi eingreiðslutilboði“ innheimtufyrirtækis Atli Ísleifsson skrifar 24. september 2020 12:19 Neytendastofa hefur áður varað við starfsháttum Almennrar innheimtu. Vísir/Vilhelm Neytendasamtökin hafa varað við „eingreiðslutilboði“ innheimtufyrirtækisins Almennrar innheimtu sem boðið hefur verið þeim sem hafa tekið smálán og eru til innheimtu hjá fyrirtækinu. Segir í tilkynningu frá samtökunum að margir hafi haft samband við samtökin og kvartað, en í ljós hafi komið að einungis sé verið að bjóða afslátt af einni kröfu en ekki heildarskuldinni. „Um er að ræða staðlaðan texta þar sem lántakendum er boðið að greiða upp heildarskuld með eingreiðslu undir formerkjum „eingreiðslutilboðs“. Í textanum kemur jafnframt fram að allur áfallinn kostnaður tengdur skuldinni falli niður.“ Halda að um endanlegt uppgjör sé að ræða Neytendasamtökin segja að allir þeir sem hafi leitað til þeirra vegna þessa hafi allir lagt þann skilning í tilboðið að um sé að ræða endanlegt uppgjör á öllum útistandandi kröfum, enda sérstaklega kveðið á um fjárhæð „heildarskuldarinnar“. Ekki komi fram neinar upplýsingar um kröfunúmer í textanum. „Í öllum málunum sem samtökunum hefur borist tengdum „eingreiðslutilboðinu“ hafa útistandandi kröfur verið fleiri en ein. Heildarfjárhæð allra útistandandi krafna er þar með mun hærri en sem nemur þeirri fjárhæð sem kemur fram í tilboðinu. Lántakendur eru því flestir undir því yfirskini að um kostaboð sé að ræða þar sem dágóður afsláttur yrði veittur gegn uppgreiðslu krafnanna. Svona hljóða skilaboðin frá Almennri innheimtu: „Góðan dag Við höfum til innheimtu skuld frá kröfuhafanum Ecommerce2020 ApS, sem við viljum bjóða þér að klára fyrir fullt og allt. Okkur langar að koma til móts við þig og fella niður allan áfallinn kostnað á skuldinni. Heildarskuldin í dag er X þar af er höfuðstóllinn Y. Við viljum bjóða þér að klára málið með eingreiðslu að upphæð Y. Við sýnum því skilning að þú getir kannski ekki greitt upphæðina strax og því getum við sent þér greiðsluhlekk sem þú getur greitt um mánaðarmótin eða samkvæmt samkomulagi.“ Villandi orðalag að mati Neytendasamtakanna Í tilkynningunni frá Neytendasamtökunum, sem hafa áður gagnrýnt starfsemi innheimtufyrirtækisins, segir að orðalag „eingreiðslutilboðsins“ sé að hennar mati afar villandi þar sem auðveldlega megi misskilja orðalag um heildarskuld sem allar útistandandi kröfur. „Þar sem Neytendasamtökin hafa séð mörg dæmi um að Almenn innheimta innheimti ólögmæt lán, og hafi þar að auki sett himinháan innheimtukostnað ofan á slíkar kröfur, vara þau fólk við að taka tilboðinu nema ljóst sé að viðkomandi skuldi raunverulega höfuðstól lánanna. Því miður er ekkert opinbert eftirlit með fyrirtækinu sem virðist geta hagað sér að vild og hefur þar af leiðandi verið mikilvægur hlekkur í því smálánabraski sem fengist hefur að viðgangast hér á landi og reynst mörgum dýrkeypt.“ Ekki hefur náðst í eiganda Almennrar innheimtu, Gísli Kr. Björnsson lögmann, í morgun. Smálán Neytendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Fleiri fréttir Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Sjá meira
Neytendasamtökin hafa varað við „eingreiðslutilboði“ innheimtufyrirtækisins Almennrar innheimtu sem boðið hefur verið þeim sem hafa tekið smálán og eru til innheimtu hjá fyrirtækinu. Segir í tilkynningu frá samtökunum að margir hafi haft samband við samtökin og kvartað, en í ljós hafi komið að einungis sé verið að bjóða afslátt af einni kröfu en ekki heildarskuldinni. „Um er að ræða staðlaðan texta þar sem lántakendum er boðið að greiða upp heildarskuld með eingreiðslu undir formerkjum „eingreiðslutilboðs“. Í textanum kemur jafnframt fram að allur áfallinn kostnaður tengdur skuldinni falli niður.“ Halda að um endanlegt uppgjör sé að ræða Neytendasamtökin segja að allir þeir sem hafi leitað til þeirra vegna þessa hafi allir lagt þann skilning í tilboðið að um sé að ræða endanlegt uppgjör á öllum útistandandi kröfum, enda sérstaklega kveðið á um fjárhæð „heildarskuldarinnar“. Ekki komi fram neinar upplýsingar um kröfunúmer í textanum. „Í öllum málunum sem samtökunum hefur borist tengdum „eingreiðslutilboðinu“ hafa útistandandi kröfur verið fleiri en ein. Heildarfjárhæð allra útistandandi krafna er þar með mun hærri en sem nemur þeirri fjárhæð sem kemur fram í tilboðinu. Lántakendur eru því flestir undir því yfirskini að um kostaboð sé að ræða þar sem dágóður afsláttur yrði veittur gegn uppgreiðslu krafnanna. Svona hljóða skilaboðin frá Almennri innheimtu: „Góðan dag Við höfum til innheimtu skuld frá kröfuhafanum Ecommerce2020 ApS, sem við viljum bjóða þér að klára fyrir fullt og allt. Okkur langar að koma til móts við þig og fella niður allan áfallinn kostnað á skuldinni. Heildarskuldin í dag er X þar af er höfuðstóllinn Y. Við viljum bjóða þér að klára málið með eingreiðslu að upphæð Y. Við sýnum því skilning að þú getir kannski ekki greitt upphæðina strax og því getum við sent þér greiðsluhlekk sem þú getur greitt um mánaðarmótin eða samkvæmt samkomulagi.“ Villandi orðalag að mati Neytendasamtakanna Í tilkynningunni frá Neytendasamtökunum, sem hafa áður gagnrýnt starfsemi innheimtufyrirtækisins, segir að orðalag „eingreiðslutilboðsins“ sé að hennar mati afar villandi þar sem auðveldlega megi misskilja orðalag um heildarskuld sem allar útistandandi kröfur. „Þar sem Neytendasamtökin hafa séð mörg dæmi um að Almenn innheimta innheimti ólögmæt lán, og hafi þar að auki sett himinháan innheimtukostnað ofan á slíkar kröfur, vara þau fólk við að taka tilboðinu nema ljóst sé að viðkomandi skuldi raunverulega höfuðstól lánanna. Því miður er ekkert opinbert eftirlit með fyrirtækinu sem virðist geta hagað sér að vild og hefur þar af leiðandi verið mikilvægur hlekkur í því smálánabraski sem fengist hefur að viðgangast hér á landi og reynst mörgum dýrkeypt.“ Ekki hefur náðst í eiganda Almennrar innheimtu, Gísli Kr. Björnsson lögmann, í morgun.
„Góðan dag Við höfum til innheimtu skuld frá kröfuhafanum Ecommerce2020 ApS, sem við viljum bjóða þér að klára fyrir fullt og allt. Okkur langar að koma til móts við þig og fella niður allan áfallinn kostnað á skuldinni. Heildarskuldin í dag er X þar af er höfuðstóllinn Y. Við viljum bjóða þér að klára málið með eingreiðslu að upphæð Y. Við sýnum því skilning að þú getir kannski ekki greitt upphæðina strax og því getum við sent þér greiðsluhlekk sem þú getur greitt um mánaðarmótin eða samkvæmt samkomulagi.“
Smálán Neytendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Fleiri fréttir Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Sjá meira