Chelsea mætir lærisveinum José er Roman nær þúsund leikjum sem eigandi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. nóvember 2020 12:15 José Mourinho og Roman Abramovich á góðri stundu árið 2004. Peter Kenyon, þáverandi framkvæmdastjóri Chelsea, er að þvælast fyrir. Phil Cole/Getty Images Leikur Chelsea og Tottenham Hotspur klukkan 16.30 í ensku úrvalsdeildinni í dag verður 1000. leikur Chelsea í eigu auðkýfingsins Roman Abramovich.
Það er ákveðin kaldhæðni örlaganna fólgin í því að leikurinn sé gegn liði sem José Mourinho stýrir. Maðurinn sem færði Roman – og Chelsea – hvað mestan árangur frá því Rússinn festi kaup á Lundúnaliðinu í júlí árið 2003. Ítalinn Claudio Ranieri stýrði Chelsea eftir að Roman varð eigandi Chelsea. Hann var síðan látinn fara og José kom inn í ensku úrvalsdeildina með stæl. Það sem vekur enn meiri athygli – fyrir okkur Íslendinga allavega - er að Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta mark Chelsea eftir að Roman keypti félagið ásamt því að skora fyrsta markið eftir að Mourinho tók við. Frank Lampard, einn dáðasti leikmaður Chelsea frá upphafi og núverandi þjálfari liðsins, ræddi Roman og leikina þúsund á blaðamannafundi fyrir leik dagsins. In his press conference this week, Frank Lampard reflected on the impact of Roman Abramovich ahead of the 1000th game of his ownership today and paid tribute to his childhood idol, the late Diego Maradona, who passed away this week — Chelsea FC (@ChelseaFC) November 29, 2020 Á vefsíðu Chelsea var farið yfir það sem hefur drifið á daga félagsins á þessum 17 árum undir stjórn Roman. Það er töluvert. Alls hefur liðið spilað 999 leiki, unnið 608, gert 215 jafntefli og tapað 176. Á þessum tíma hefur Chelsea skorað 1903 mörk og fengið á sig 896. Liðið hefur fimm sinnum unnið ensku úrvalsdeildina [2005, 2006, 2010, 2015 og 2017]. Chelsea vann Meistaradeild Evrópu árið 2012 og Evrópudeildina 2013 og 2019. Chelsea hefur fimm sinnum unnið enska FA-bikarinn [2007, 2009, 2010, 2012 og 2018] ásamt því að vinna enska deildarbikarinn þrívegis [2005, 2007 og 2015]. Ekkert enskt félag hefur unnið jafn marga stóra titla og Chelsea síðan Roman kom til sögunnar. Chelsea er með 16, Manchester United 14 og Manchester City sjö. Þá hefur kvennalið Chelsea einnig blómstrað undanfarin fimm ár. Liðið hefur þrívegis orðið deildarmeistari [2015, 2018 og 2020]. Það vann FA-bikarinn árin 2015 og 2018 ásamt því að vinna deildarbikarinn á þessu ári. Að lokum hefur Chelsea unnið hinn virta FA-unglingabikar alls sjö sinnum á síðustu tíu árum.
Fótbolti Enski boltinn Tengdar fréttir Segir leikinn á Brúnni eins og alla aðra leiki Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að það sé ekkert sérstakt fyrir hann að snúa aftur á Brúnna þar sem Mourinho var með völdin fyrir ekki svo mörgum árum. 27. nóvember 2020 17:45 Mourinho um samfélagsmiðlanotkun sína: Vill opna heim minn fyrir stuðningsmönnum José Mourinho er mættur á samfélagsmiðla og hefur til að mynda farið mikinn á Instagram á leiktíðinni. Ástæðan er sú að hann vill opna heim sinni fyrir stuðningsmönnum. 26. nóvember 2020 07:00 Mest lesið Rashford líka skilinn eftir heima Enski boltinn Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Fótbolti Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Fótbolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Fótbolti Fleiri fréttir Pochettino farinn frá Chelsea Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Mo Salah ætlar að vinna titla með Liverpool á næstu leiktíð Rashford líka skilinn eftir heima Sagður vera búinn að henda Henderson út úr enska landsliðinu Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Liverpool staðfestir komu Slot Rodri gagnrýnir hugarfar Arsenal manna: Þar liggur munurinn Dagný framlengir samning sinn við West Ham Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Sjá meira
Segir leikinn á Brúnni eins og alla aðra leiki Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að það sé ekkert sérstakt fyrir hann að snúa aftur á Brúnna þar sem Mourinho var með völdin fyrir ekki svo mörgum árum. 27. nóvember 2020 17:45
Mourinho um samfélagsmiðlanotkun sína: Vill opna heim minn fyrir stuðningsmönnum José Mourinho er mættur á samfélagsmiðla og hefur til að mynda farið mikinn á Instagram á leiktíðinni. Ástæðan er sú að hann vill opna heim sinni fyrir stuðningsmönnum. 26. nóvember 2020 07:00